breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Ég vil þakka þetta ágæta yfirlit en ekki kom svarið við spurningunni. Hún var býsna einföld: Er hv. þingmaður tilbúinn í öllum tilvikum að setja einfaldlega rök sem fram koma í rammaáætlun og þeim rannsóknum og athugunum á verðmæti landsvæða til hliðar og í raun bara þess vegna leggja hana af vegna þess að hann vill leggja allt kapp á orkunýtingu og í raun hætta með þá aðferðafræði sem ætluð var til að leiða fram sátt byggða á vandaðri vinnu, rannsóknum og umræðu, m.a. hér í þingsal, sem til var stofnað með rammaáætlun í býsna breiðri pólitískri sátt?