breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. settum ráðherra í þessu máli fyrir sína framsögu. Sömuleiðis vil ég taka undir með hæstv. ráðherra þegar kemur að því, og hæstv. ráðherra talaði mjög skýrt, að það er þingið sem tekur þingsályktunartillöguna til meðferðar og leggur línur til baka til ráðherra um það hvernig þingið vill sjá henni fylgt eftir. Það er stóra málið í því. Það er það sem þessi málstofa sem við stöndum hér í gengur út á og sömuleiðis sú vinna sem nefndir Alþingis taka sér fyrir hendur.
Eins og kemur fram í þessari tillögu sem hér er til umfjöllunar þá eru hér nokkrir virkjunarkostir tilteknir. Það kemur sennilega fáum á óvart að við þingmenn Norðausturkjördæmis erum búnir að raða okkur á mælendaskrá og ég kem til með að fjalla í minni ræðu um það sem snýr að Hamarsvirkjun. Í þessari tillögu er búið að færa hana úr verndarflokki í biðflokk. Ég er þeirrar skoðunar og tek undir með þeim sveitarfélögum sem fyrir austan eru, Múlaþingi, Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppi, og tek undir allar samþykktir Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi þar sem hvatt er til þess að þessi virkjunarkostur, Hamarsvirkjun, fari í nýtingarflokk.
Það er áhugavert, frú forseti, að lesa og fara yfir skilgreiningar þeirra sem voru í þessum faghópum, það eru einir fjórir faghópar sem fjalla um ákveðin svið, og bera saman það þegar verið er að meta áhrif á virkjanir sem tilteknar eru hér sem eru á Vestfjörðum og síðan Hamarsvirkjun. Þegar maður rýnir þetta og reynir að lesa á milli línanna þá finnst mér vanta ákveðna samfellu í því að virkjunarkosturinn sem snýr að Hamarsvirkjun fái sömu meðferð og fjallað sé um hann á sama hátt og virkjunarkosti á Vestfjörðum sem settir eru í nýtingu. Þar vantar, frú forseti, ákveðna samfellu og ég held að það sé hv. umhverfis- og samgöngunefndar að rýna það sömuleiðis vel þegar unnið verður í málinu.
Það sem ég hnaut fyrst og fremst um þegar maður fer að horfa ofan í það hverju þessir faghópar hafa skilað af sér — t.d. faghópur 2 sem fjallaði um útivist og hlunnindi sem kemur inn á ferðaþjónustuna hvað það varðar, þá er nú sá ferðaþjónustuaðili sem næst virkjuninni er í Hamarsfirði, Eiður Ragnarsson á Bragðavöllum, hlynntur því að farið verði í þessar framkvæmdir. Það er tiltekið sömuleiðis og borið saman við það hver áhrifin á ferðaþjónustu voru t.d. í kjölfar þess þegar Kárahnjúkavirkjun var sett á fót á sínum tíma og þær breytingar sem urðu. Vissulega verðum við að taka það með í reikninginn að það hefur orðið veruleg breyting frá því að Kárahnjúkavirkjun tók til starfa á sínum tíma. Það hefur náttúrlega orðið breyting hér varðandi aðgengi ferðamanna að landinu o.s.frv.
Það sem ég vildi segja, frú forseti, er að það er ekki alveg samasemmerki milli þess að ferðamenn hætti að skoða náttúruperlur og að það sé virkjað á ákveðnum stöðum. Því fer fjarri. Við skulum hafa í huga að nýjar náttúruperlur verða til, t.d. Stuðlagil. Loksins var hægt að skoða Stuðlagil þegar Kárahnjúkastífla var reist og heimamenn, t.d. í Klausturseli, forðuðust að koma að þessu gili þegar þeir voru yngri, þegar Jökla var í stuði, Jökulsá á Dal.
Svona atriði held ég að sé alltaf erfitt að bera saman en það er alveg ljóst að kosturinn við Hamarsvirkjun, sem er 60 MW vatnsaflsvirkjun með meðalframleiðslugetu upp á 232 GWst á ári, er að hún er klárlega utan áhættusvæðis þegar kemur að náttúruvá. Virkjunin kemur til með að nýtast sem ákveðið varaafl ef á vantar og sömuleiðis er hægt að nota aflið frá virkjuninni sem tiltækt í ákveðinn eyjarekstur.
Það eru ótvíræðir kostir hvað það varðar að virkja á þessu svæði en vissulega þegar virkjað er þá þurfum við alltaf að ganga hægt um gleðinnar dyr og gæta að því umhverfi. Þess vegna er mikilvægt í því samhengi að við þurfum ákveðið ferli. Þó að það taki ákveðinn tíma og ákveðna umræðu þá erum við með ákveðna varnagla þegar við förum að fjalla um ákveðna virkjunarkosti og erum við þá með þessa þrjá flokka sem við flokkum þetta í. En ég tel mjög mikilvægt í þessu samhengi, frú forseti, að horft verði til þess hjá hv. umhverfis- og samgöngunefnd að Hamarsvirkjun verði færð upp, þ.e. tekin úr biðflokki og sett í nýtingu. Við skulum líka hafa í huga að sem stendur er ekkert verkefni í nýtingarflokki á Austurlandi á meðan það eru um fimm verkefni sem er t.d. raðað í nýtingarflokk á Vestfjörðum og það er bara jákvætt. Það er jákvætt að það sé fjöldi verkefna í nýtingarflokki á Vestfjörðum en ég vil bara ítreka, frú forseti, mikilvægi þess að horfa til þess að við skiljum ekki Austurland eftir hvað þetta varðar og horfum til þess að þessi virkjunarkostur verði settur í nýtingu.
Hamarsvirkjun er í sjálfu sér ekkert síðri þegar kemur að mikilvægi er snýr að raforkuöryggi og raforkuframboði á Austurlandi. Auk þess getur þetta nýst inn á dreifikerfið fyrir allt landið sömuleiðis. Hv. þm. Jens Garðar Helgason fór ágætlega yfir það í sinni ræðu sem snýr að því hvar stærstu vatnsaflsstöðvar okkar eru sömuleiðis. Megnið af þeim er nú á Suðurlandi. Þegar við horfum til þess að það er náttúruvá er sannarlega hægt að segja að Hamarsvirkjun sé utan við, Hamarsvirkjun er klárlega utan þeirrar línu sem við höfum dregið þegar náttúruvá er annars vegar. Í því samhengi, frú forseti, held ég að það sé mikilvægt að hv. umhverfis- og samgöngunefnd taki til endurskoðunar þessa þingsályktunartillögu og horfi til þess að Hamarsvirkjun verði færð upp í nýtingarflokk. Það er mikilvægt fyrir Austurland og það er sömuleiðis mikilvægt fyrir landið allt.