breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa ræðu og þau athyglisverðu sjónarmið sem koma hér fram, eins og reyndar í sumum fyrri ræðum, sem ég held að væri gott að fá aðeins dýpri skilning á. Hér er verið að tala um rök fyrir virkjunum á tilteknum svæðum út frá náttúruvá á öðrum svæðum. Og Ísland einkennist af náttúruvá. Það á auðvitað sérstaklega við um jarðhitasvæðin þar sem jarðhitavirkjanirnar eru og við vitum að það er t.d. byrjað jarðhræringatímabil á Reykjanesi. Þar eru alla vega tvö svæði í nýtingarflokki. Hér má skilja það þannig að það sé verið að vísa þá væntanlega til hugsanlegs goss í Bárðarbungu sem gæti haft alvarlegar afleiðingar á virkjanir í Þjórsá og þar séu mörg egg í sömu körfu. Það sem er aðeins óljóst í þessum málflutningi er hvort átt er við að áhættudreifa eigi virkjunum þannig að látið sé staðar numið á Þjórsársvæðinu vegna þess að náttúruhamfarir í Bárðarbungu gætu í raun slegið út mjög margar virkjanir á sama tíma og þá væri búið að byggja upp alls konar atvinnustarfsemi og annað og selja orkuna frá þeim þannig að samfélagið væri í miklum vanda. Ég heyri í raun þá sem tala mikið um þessa náttúruvá ekki tala þannig heldur vilja þeir halda áfram að virkja meira í Þjórsá og vilja jafnvel virkja síðan á öðrum landsvæðum en þau landsvæði eiga að njóta þess í atvinnuuppbyggingu, ekki satt? Þannig að ég sé ekki hvernig orkan frá þeim virkjunum kemur í stað orkunnar sem yrði slegin út t.d. á Þjórsársvæðinu eða Reykjanessvæðinu. Manni líður aðeins eins og það sé verið að nota náttúruvárrökin til þess að færa rök fyrir því að virkja annars staðar án þess að fjallað sé um þetta af einhverri alvöru sem áhættuþátt í orkumálum okkar Íslendinga.