breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Það er alveg hárrétt að þeir virkjunarkostir sem um er rætt í þessari áætlun, sem snúa að Vestfjörðum og Austfjörðum, eru klárlega utan þess áhættusvæðis sem um er rætt. En hitt er stóra málið í þessu, að til framtíðar þurfum við meiri orku. Það er alveg ljóst. Hvar eigum við að fá hana? Eigum við að setja öll eggin í sömu körfuna? Eigum við bara að reyna að virkja alla virkjunarkosti sem mögulegir eru í Þjórsá t.d.? Ég held að það sé ekki vilji til þess. Ég held að það sé skynsamlega leiðin að reyna að nýta þá virkjunarkosti sem fyrir eru, t.d. á Vestfjörðum og Hamarsvirkjun í þessu tilliti sem við erum að ræða hér, sem nýtast þá nærsamfélaginu og geta með bættu flutningskerfi nýst landinu öllu. Það er lykilatriði. Lykilatriðið til framtíðar er að við þurfum aukna orku inn á kerfið hjá okkur. Það er alveg ljóst og eins og er, bæði fyrir austan og vestan, erum við að keyra bæði heimili og verksmiðjur á olíu. Það er eitthvað sem við viljum ekki sjá til framtíðar.