157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[18:08]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um breytingu á áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, eða það sem við köllum í daglegu tali rammaáætlun eða rammann. Mér er nú nokkur vandi á höndum, frú forseti, því að eiginlega allt sem ég var búinn að setja á blað, svona punktar til að tala út frá, hefur nú kannski verið meginþemað í þeirri umræðu sem nú þegar hefur átt sér stað. (umhv.- og loftslrh.: Menn hafa nú endurtekið sig áður hérna inni. )[Hlátur í þingsal.] Jú, jú, menn hafa gert það, hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra er bara prýðisgóður leikmaður þegar kemur að þeirri leikfléttu og hefur beitt henni hér fyrr á tíð, er jafnvel líklegur til að eiga eftir að eiga einhverja góða spretti í því í framtíðinni.

Það sem við erum að ræða hér er möguleiki á 60 MW virkjun. Það er talsverð virkjun. Það munar umtalsvert um 60 MW, eins og hér hefur verið komið inn á, á landsvæði sem er tiltölulega landfræðilega öruggt og ekki líklegt til að verða fyrir miklum áföllum. Það sem stendur líka upp úr eru þær jákvæðu umsagnir sem eru að koma frá þeim aðilum sem hlut eiga að málinu, þ.e. sveitarfélögunum annars vegar og svo landeigendunum hins vegar. Það má jafnvel nefna í þessari upptalningu líka, af því að hér var örlítið rætt um faghópana áðan, að það virðist vera að því nær mögulegri virkjun sem umsagnaraðilarnir eru, þeim mun jákvæðari séu þeir. Það er hins vegar mynd sem við þekkjum mjög vel í okkar samfélagi og í umræðu í þessum sal að helst gætir yfirleitt tortryggninnar einhvers staðar lengra í burtu. Hv. þm. Jens Garðar Helgason nefndi í erindi sínu til að mynda Landvernd. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þingmaður með það að ég man ekki í fljótu bragði eftir jákvæðri umsögn úr þeirri átt svoleiðis að það þarf ekkert að koma á óvart. Fleiri slíkir aðilar sem sjaldan er að vænta kannski jákvæðra umsagna eru t.d. Náttúrufræðistofnun eða Minjastofnun eftir atvikum. Við þekkjum þetta allt, þetta ferli. Það sem er kannski verra er að ég tel ákveðna aðila, af því að ég nefndi hér Landvernd, eiginlega vera að verða marklausa umsagnaraðila því ef það getur aldrei komið jákvæð umsögn þá er alveg eins hægt að vera með staðlað erindi. Það getur verið tiltölulega stutt og bara með smá bili í miðri málsgrein þar sem hægt er að setja inn staðarheitið. Að öðru leyti er umsögnin eins.

Mér finnst líka skorta á í þessari umræðu, frú forseti, að nú er nokkuð mikil umræða um að orkuverð fari hækkandi og spár þartilgerðra aðila eru meira og minna allar á sömu lund, þ.e. að orkuverð muni hækka, og hvers vegna? Þar eru tveir lykilþættir sem ég hygg að allir í þessum sal þekki. Það er annars vegar eftirspurnin og hins vegar framboðið. Ef við ætlum ekki að tryggja framboð þá eykst þrýstingurinn á eftirspurnarhliðinni. Vísasta leiðin til að búa hér til orkuverð, sem er ekki til þess fallið að ýta undir hagvöxt í samfélaginu eða gera Ísland að ákjósanlegum stað til að búa á eða reka fyrirtæki á, er að stuðla að því að þrýsta upp orkuverði. Hér er um að ræða virkjunarmöguleika, Hamarsvirkjun, sem má segja á vondri íslensku að tikki í ákveðin box. Hún er alls ekki með þeim stærstu en nokkuð stór og það munar verulega um hana. Hún er á landfræðilega tiltölulega öruggu svæði og er á svæði þar sem engin önnur virkjun er í nýtingarflokki. Þetta eru allt saman punktar sem ég tel að skipti verulegu máli þegar við erum að fjalla um þennan þátt.

Í umræðu áðan og orðaskiptum í ræðu og spurningum og andsvörum um rammaáætlun komu spurningar um hvort það væri, og vísað til ákveðinna hv. þingmanna, þeirra skoðun að það væri ekki rétta leiðin að fylgja rammaáætlun því að hún myndi og hafi stuðlað að svo vandaðri umfjöllun og var á sínum tíma náttúrlega sett til að skapa einhvers konar sátt í íslensku samfélagi um það í hvaða röð við vildum sjá virkjunarkosti koma inn til framkvæmda. Ég ætla að leyfa mér að segja það hér, frú forseti, að hvað þennan þátt varðar hafa áform um hlutverk rammaáætlunar algerlega mistekist. Hún hefur alls ekki stuðlað að þeirri sátt sem hún var hugsuð til að gera.

Það er, eins og ég nefndi áðan, athygli vert að því nær mögulegum virkjunarkosti sem umsagnaraðilar eru staðsettir, þeim mun jákvæðari eru þeir.

Aðeins varðandi áhrif á ferðamennsku, upplifun af náttúru og annað slíkt þá höfum við náttúrlega, og það var nefnt meira að segja áðan ágætt dæmi af hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni, hið skemmtilega og mikla undur sem Stuðlagil er. Ég er sjálfur búinn að heimsækja það og ég hvet alla til að gera það. Það er upplifun að koma þangað. Stuðlagil var enginn ferðamannastaður áður en við fórum í Kárahnjúkavirkjun. Það sem er enn þá merkilegra er að svæðið þar sem Kárahnjúkavirkjun stendur, langarðbærasta virkjun okkar Íslendinga, var ekki ferðamannastaður að neinu marki áður en framkvæmdir hófust þar og minni ég hv. þingmenn sem eru staddir í salnum á aldeilis mögnuð myndskeið sem sýnd voru í áróðursskyni í Ríkissjónvarpinu, í sjónvarpi okkar allra landsmanna, þar sem hinn magnaði fjölmiðlamaður Ómar Ragnarsson flaug yfir svæðið og sýndi okkur hverju við værum að fórna. Hann átti að vísu til að fljúga yfir svæði sem alls ekki var verið að fórna en látum það liggja á milli hluta. En hvað gerðist svo í kjölfarið? Kárahnjúkar eru orðnir að ferðamannastað. Virkjunin tryggði aðgang að svæðinu, þannig að það er ekki endilega þannig, frú forseti, að það að nýta náttúruna, ekki síst með svo grænum hætti sem nýting vatnsfalla er, sé einhvers konar árás á möguleika fólks til að fara um landið og njóta náttúrunnar, jafnvel þvert á móti. Dæmin eru fjölmörg þess efnis að það hafi hreinlega stuðlað að því að fólk hafi farið og skoðað og kynnt sér viðkomandi svæði.

En af því að ég nefndi það hér — og þetta er kannski til að æra óstöðugan eftir 2. umræðu en látum það nú fljóta með samt, frú forseti — og það hefur verið nefnt í öðrum ræðum að það væri enginn virkjunarkostur í nýtingarflokki á Austurlandi eins og staðan er núna, þá erum við nýbúin að eiga hér samskipti vegna þingsályktunartillögu, sem sá sem hér stendur lagði fram fyrr í dag, varðandi það að flýta framkvæmdum yfir Öxi. Vegna þess hve illa er vegið að Austurlandi í samgönguáætlun þá er ágætt að benda á það hér, frú forseti, að við erum einmitt að ræða þetta sama svæði, við erum að ræða Austurland. Mér þætti bragur að því að þingmenn hér þvert á flokka og þingmenn sem eiga sæti í hv. nefnd hefðu það nú aðeins í huga hvaða meðferð Austurland er að fá í þessum sal þessa dagana og síðustu vikur og jafnvel mánuði. — Ég held að ég láti þessu lokið, frú forseti.