breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Það kom fram hér áðan að það má og kemur stundum fyrir að menn endurtaki sig í þessum sal og mun ég eflaust endurtaka eitthvað af þeim sjónarmiðum sem hér hafa komið fram í þessari góðu umræðu en mun jafnframt reyna að lýsa minni skoðun á þeim viðfangsefnum sem hér eru til umfjöllunar.
Ég vil byrja á að þakka hæstv. settum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kærlega fyrir sína framsögu og fyrir að koma með þetta mál. Ég vil fagna því og er sammála hæstv. ráðherra um að Hamarsvirkjun eigi ekki heima í verndarflokki. Mér þótti ráðherra í sinni framsögu og jafnframt hér í greinargerðinni færa mjög góð rök fyrir því af hverju virkjunarkosturinn á einmitt ekki heima í verndarflokki, svo að ég fái bara að drepa hér niður í greinargerðina, með leyfi forseta:
„Af umsögnum umsagnaraðila við tillögu verkefnisstjórnar áætlunarinnar má sjá að sveitarfélög á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk. Meðal annars er vísað til þess að raforkukerfið á Austurlandi sé veikburða, skortur sé á framboði á raforku á svæðinu og slíkt hamli atvinnuuppbyggingu. Nú þegar hafi skortur á raforku áhrif á atvinnulíf á svæðinu og mikilvægt sé að fjölga virkjunarkostum innan þess, sérstaklega með hliðsjón af orkuspá og þörf fyrir græna sjálfbæra orku. Þá hefur efnahagslegur ávinningur virkjunarkostsins verið metinn nokkuð jákvæður.“
Ég er þannig gerður að ég tel að þegar sveitarfélög á svæðinu og fólk í nærsamfélaginu lýsir skoðunum sínum á máli eins og þessu sem við tökum ákvarðanir um á vettvangi Alþingis þá beri okkur að hlusta og ég held að það sé erfitt að finna virkjunarkost sem jafn mikill stuðningur er við í nærsamfélaginu og þann sem hér er til umræðu, þ.e. Hamarsvirkjun. Það má jafnframt — þó að ráðherra sé hér að leggja til að Hamarsvirkjun fari í biðflokk frekar en verndarflokk, sem mér finnst skynsamlegt — líta á þetta sem rök fyrir því að virkjunarkosturinn eigi frekar heima í nýtingarflokki og ég tek undir það sem hæstv. ráðherra sagði hér áðan að hann væri þingræðissinni. Ég er líka þingræðissinni. Ég sé mörg góð rök fyrir því að Hamarsvirkjun eigi frekar heima í nýtingarflokki. Ég tek jafnframt undir með hv. þm. Degi B. Eggertssyni um að rökin eiga að ráða för og ég treysti umhverfis- og samgöngunefnd mjög vel fyrir því verkefni að leggjast yfir það hvort þessi virkjunarkostur eigi jafnvel frekar heima í nýtingarflokki vegna þeirra áhrifa sem hér er lýst á m.a. atvinnulíf á svæðinu. Eins og hefur komið fram í ræðum hv. þingmanna hér er ekkert verkefni í nýtingarflokki á Austurlandi. Ég held að það sé eitthvað sem þurfi að taka með í reikninginn hér.
Einnig kemur fram í greinargerðinni, svo ég haldi áfram, með leyfi forseta:
„Ójafnvægi er nú á milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði, sem hefur leitt til verulegra verðhækkana. Að mati Landsnets eru meiri líkur en minni á raforkuskorti á næstu árum, þar sem grípa gæti þurft til skömmtunar á rafmagni fyrir heimili og fyrirtæki.“
Raforkuskortur. Því miður hefur ríkt kyrrstaða þegar kemur að orkuöflun í tíð fyrri ríkisstjórnar og hefur hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tekið skref og hefur boðað að tekin verði skref til að rjúfa þá kyrrstöðu. Hér erum við með möguleg tækifæri til að taka frekari svoleiðis skref, þ.e. ef þingheimur kemst að þeirri niðurstöðu að Hamarsvirkjun eigi heima frekar í nýtingarflokki.
Ég vil líka velta svolítið upp orðinu raforkuskortur sem Landsnet bendir hér á að séu meiri líkur en minni á að við gætum lent í. Maður lendir oft í samtölum um raforkuskort, hvort hér sé raforkuskortur eða ekki, og ég hef gjarnan heyrt þau sjónarmið að hér á Íslandi geti ekki ríkt raforkuskortur því við framleiðum nú þegar svo mikið af rafmagni á hvern íbúa samanborið við mörg önnur lönd. Mér sjálfum finnst það, ef ég á að segja alveg eins og er, heldur barnaleg nálgun, enda höfum við Íslendingar hlutfallslega yfirburði í raforkuframleiðslu, alveg eins og Norðmenn hafa hlutfallslega yfirburði þegar kemur að framleiðslu á laxi og Kólumbía hefur hlutfallslega yfirburði í framleiðslu á kaffi. Ég veit ekki til þess að menn séu mikið í Kólumbíu að velta því upp að þeir ættu að hætta að framleiða kaffi af því að þeir framleiði nú þegar svo mikið af kaffi per höfðatölu. Ég lít nokkurn veginn á raforkuframleiðslu á Íslandi sömu augum. Við höfum hlutfallslega yfirburði hér og raforkuframleiðsla er eitt af því sem stendur undir atvinnulífi og verðmætasköpun og stendur þar af leiðandi undir velferðinni sem við hér öll inni erum nokkurn veginn sammála um að vilja styrkja og efla.
Eins og ég kom inn á áður þá er mikill stuðningur í nærsamfélaginu við a.m.k. að þessi virkjunarkostur, þ.e. Hamarsvirkjun, fari ekki í verndarflokk og skiluðu til að mynda bæði sveitarfélögin Múlaþing og Fjarðabyggð inn umsögn þegar tillaga ráðherra lá inni í samráðsgátt. Ég vil fá að drepa niður í umsögn Fjarðabyggðar af því að umræða um orkumál helst gjarnan í hendur við umræðu um umhverfisvernd en umhverfisvernd og umhverfismál hafa tvær hliðar í þessu samhengi. Við erum annars vegar með eitthvert landsvæði sem er undir en síðan er það líka eitt af okkar meginmarkmiðum að draga úr kolefnislosun. Hér segir í umsögn Fjarðabyggðar, með leyfi forseta:
Það er því mikilvægt að fjölga virkjunarkostum á Austurlandi til framtíðar litið enda ljóst miðað við orkuspár að eftirspurn og þörf fyrir græna orku fer hratt vaxandi á sama tíma og hætta á notkun á jarðefnaeldsneyti til að mæta skuldbindingum Íslands í loftlagsmálum. Sem dæmi þá nota sjávarútvegsfyrirtæki í Fjarðabyggð um 120 þúsund lítra af olíu á hverjum þeim degi sem mjöl- og lýsisiðnaður er starfræktur með auknum kostnaði og neikvæðum umhverfisáhrifum þegar skortur er á skerðanlegri orku. Til lengri tíma litið þá munu fiskimjölsverksmiðjur ekki geta brugðist við með þessum hætti og nauðsynlegt að til staðar verði orka til að nýta við þá mikilvægu framleiðslu.
Frú forseti. Eins og ég sagði í upphafi styð ég heils hugar þá ákvörðun ráðherra að leggja ekki til að Hamarsvirkjun fari í verndarflokk. Hún á miklu frekar heima í biðflokki en verndarflokki en ég segi líkt og fleiri hér að ef umhverfis- og samgöngunefnd, eftir að hafa lagst yfir öll rökin og allar hliðar þessa máls, kemst að þeirri niðurstöðu að Hamarsvirkjun eigi frekar heima í nýtingarflokki þá mun ég styðja þá niðurstöðu.