breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég ætla að koma hér upp og fagna því að hér eru búnir að koma upp oddviti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og oddviti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi og lýsa yfir stuðningi við að Hamarsvirkjun fari í nýtingarflokk. Ég fagna því að það sé samstaða, að stjórnarþingmenn horfi hér á þær umsagnir, eins og hv. þm. Ingvar Þóroddsson kemur inn á, að það sé horft til þess ríka vilja samfélagsins fyrir austan, þess þunga sem liggur í málinu fyrir austan. Það er svo ánægjulegt að sjá að það er horft til þessara sjónarmiða. Það er horft til radda heimamanna, sveitarstjórna, landeiganda, þeirra sem eru að reka ferðaþjónustu á svæðinu og hrekja þau rök um að þetta muni hafa einhver áhrif á ferðaþjónustu og segja að þetta muni ekki hafa nein áhrif á ferðaþjónustuna og svo fram eftir götunum.
Ég er eiginlega ekki með neina beina spurningu, virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hér upp og fagna því að umræðan hafi farið á þennan veg hér í dag og sé með þeim hætti sem hún er búin að vera. Það er svo ánægjulegt að heyra þann samhljóm sem er hér hjá þingmönnum þvert á flokka.