157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[18:40]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að koma mér inn í þessa umræðu hér um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Ég ætla að byrja á því, virðulegur forseti, að lýsa yfir ánægju minni með bæði ákvörðun er varðar Tröllárvirkjun í Vattardal á Vestfjörðum og sömuleiðis Skúfnavatnavirkjun, Skúfnavötn, sem er sömuleiðis á Vestfjörðum. Við þingmenn kjördæmisins sérstaklega, og ég held nú reyndar þingheimur allur, erum vel meðvituð um stöðuna í raforkumálum á Vestfjörðum og því er gríðarlega mikilvægt, og ég held að það sé samstaða meðal þingsins um það, alla vega hefur mér ekki heyrst annað hér, að bregðast við þeirri stöðu með einhverjum hætti. Þarna er svo sannarlega verið að stíga góð skref í þá átt og ég fagna því eindregið.

Það var nú einu sinni sagt varðandi Vestfirðina, ég fékk þetta nú framan í mig á fundi vestur á Ísafirði einu sinni, þegar við vorum í upphafi rafbílavæðingarinnar, að það væri nú sérstakt að kaupa sér rafmagnsbíl og keyra hann vestur á Ísafjörð og tengja hann við rafmagn og þá færi dísilrafstöðin í gang til þess að hægt væri að fylla rafmagnsbílinn af orku. En þetta er raunveruleikinn, virðulegi forseti, þetta er raunveruleikinn og þetta er sú staða sem stjórnvöld í dag og við sem þing verðum að bregðast við. Því fagna ég þessum tveimur liðum sérstaklega í þessari þingsályktunartillögu og skora bara á nefndina að standa þétt saman um að þetta verði eins og hér stendur.

Það var spurning hér áðan, virðulegur forseti, um það hvort það væri raforkuskortur á Íslandi eða ekki og menn greinir á um það og hafa á því sitt hvora sýnina. Í mínum huga er það þannig að ef það er ekki til rafmagn til þess að keyra hér verksmiðjur og vinnslur, tengja skip í höfnum og hafa hraðhleðslustöðvar í bæjarfélögum víða úti á landi, þá vantar rafmagn. Menn geta verið ósammála mér í því en þannig horfi ég á þetta. Þannig að við þurfum að virkja, við þurfum að virkja meira og við þurfum að gera það hraðar og gera það um allt land. Það er nefnilega þannig að við erum með marga mjög álitlega virkjunarkosti hringinn í kringum landið sem eru álitlegir af mjög mörgum ástæðum, m.a. vegna nærsamfélagsins, eins og hefur komið hér fram, þ.e. að þeir styrkja byggðalínuna og þeir styrkja flutningskerfið. Eftir því sem það eru fleiri punktar þá styrkja þeir flutningskerfið. Ég er ekki sérfræðingur á þessu sviði, virðulegi forseti, en ég hef setið nógu marga fundi með fulltrúum Landsnets til þess að geta haft þetta eftir. Við eigum að nýta orkuna okkar, við eigum að nýta hana til atvinnusköpunar. Orkan fer að sjálfsögðu inn á sameiginlega kerfið okkar, en því miður er staðan þannig í dag að það eru allt of mörg svæði á landinu þar sem er verulegur orkuskortur og það þarf að horfa sérstaklega til þess þegar við skoðum orkukosti til framtíðar, að mínu mati.

Það er alveg ljóst og við höfum bara séð það á þeim stöðum þar sem hafa verið stórar virkjanir, hvað þeir staðir hafa eflst og sú uppbygging sem hefur átt sér stað í kjölfarið hefur verið gríðarleg. Það þarf ekki annað en að fara austur á firði til þess að sjá áhrifin þar t.d. af því álveri sem þar reis. Þar segja mér Austfirðingar og hafa sagt nokkrir að ef þetta hefði ekki komið til þá væri ásýnd Austurlands með allt öðrum hætti en hún er í dag. Þannig að við þurfum að virkja, en við eigum auðvitað ekki að ganga um landið okkar eins og villimenn. Við þurfum að hafa einhvern ramma og við þurfum að vega og meta hvern kost fyrir sig, að sjálfsögðu eigum við að gera það. Ég er ekki að tala fyrir öðru en því. En ég hef hins vegar haft efasemdir um rammaáætlun í töluverðan tíma og ég hef flutt um það ræður hér í þessum stól og þegar ég var sveitarstjórnarfulltrúi á öðrum vettvangi, að mér finnst og hefur fundist í gegnum tíðina afar sérstakt að byggja niðurstöðu rammaáætlunar í raun og veru nær eingöngu á vinnu tveggja hópa af fjórum. Samfélagsleg og hagræn áhrif hafa illa verið metin í gegnum tíðina. Það er mjög sérstakt, virðulegur forseti, þegar þú setur af stað vinnu þar sem eiga að vera fjórir hópar til þess að meta fýsileika ákveðins verkefnis, að tveir þeirra séu eiginlega virtir að vettugi eins og hefur verið gert í gegnum tíðina. Þá er það eiginlega alveg augljóst að niðurstaðan verður ekki rétt, hún verður skökk. Við þurfum að horfa til þess í framtíðinni, við verðum að líta til þessara fjögurra hópa í okkar mati.

Það er ánægjulegt að heyra og finna samstöðu þingmanna Austurlands um Hamarsvirkjun. Það er nú þannig, og það á við í þessu máli eins og reyndar öllum öðrum málum sem koma hér úr ráðuneytunum, að það er þingið sem tekur endanlega ákvörðun. Það eru þingnefndirnar sem fá þetta í sína meðferð og umfjöllun og vinnslu. Það er niðurstaða nefndarinnar sem skiptir máli. Það er niðurstaða þingsins sem ræður og ég vona svo innilega að sú samstaða sem hefur birst hér í þessari umræðu meðal Austfirðinga og þingmanna Norðausturkjördæmis komist í gegn í nefndarvinnunni og virkjunin verði færð í nýtingu.

Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra, virðulegi forseti, en þakka þeim sem á undan hafa komið fyrir góðar og málefnalegar umræður og óska nefndinni velfarnaðar í sinni vinnu í framtíðinni.