breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristjánsdóttur kærlega fyrir fína spurningu. Ég er sammála hv. þingmanni, við eigum að sjálfsögðu að horfa til framtíðar. Það er mikilvægt að horfa til framtíðar og hætta að rífast um fortíðina. En ég held hv. þingmaður hafi sagt tvisvar eða þrisvar í sinni ræðu að það þyrfti að rjúfa kyrrstöðu og ekkert hefði gerst. Þannig að við skulum horfa til framtíðar og þegar ég keyri vestur á firði þá get ég ekki sagt annað en að það hafi eitthvað gerst á síðustu árum í samgöngumálum á Vestfjörðum í það minnsta. En við skulum skilja þetta að baki og horfa til framtíðar. Ég er sammála þér í því. Það skiptir öllu máli og það skiptir öllu máli að við náum sátt um það verkefni sem hér um ræðir.
Það er líka hárrétt hjá hv. þingmanni að því nær sem umsagnirnar eru því jákvæðari eru þær. Af hverju eru þær það? Það er punkturinn. Jú, vegna þess að þeir sem eru í nærsamfélögunum átta sig á mikilvæginu, þeir átta sig á hagsmununum og tækifærunum sem fylgja slíkri framkvæmd fyrir þeirra svæði, fyrir þeirra fyrirtæki og uppbyggingu og velmegun sem fylgir í kjölfarið. Þetta er grunnforsendan. Af hverju eru langflestar sveitarstjórnirnar jákvæðar fyrir þessu? Jú, vegna þess að þær sjá tækifæri. Á hverja eigum við að hlusta? (Gripið fram í.) Á hverja eigum við að hlusta í þessari umræðu? Eigum við að hlusta á þá sem búa á svæðinu og munu þurfa að búa með þessari ákvörðun eða einhverja sem búa ekki á svæðinu og í raun og veru þurfa ekkert að hafa neitt með hana segja í framtíðinni? Í mínum huga er það algerlega augljóst. Við eigum að hlusta á heimaaðilana og hagaðila í nærumhverfinu. Þetta er þeirra svæði og að sjálfsögðu eiga þeir að eiga lokaorðið í þessu.