157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[18:52]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir andsvarið og umræðuna. Ég held að þetta sé mjög góð umræða og ég held að við ættum að tala meira á þessum grunni. Að sjálfsögðu eigum við að hlusta á fólkið sem býr á svæðunum. Það er alveg skýrt í mínum huga. Það er þar sem við eigum að leggja við hlustir vegna þess að þetta eru líka oft svæði sem hafa verið í ótrúlega mikilli varnarbaráttu fyrir sinni tilveru, vilja búa áfram á þessum svæðum en sjá tækifærin þjóta hjá vegna þess að það er ekki jafnræði og það er ekki jafnrétti gagnvart þessum grunninnviðum sem öllu máli skipta sem gera það að verkum að það eru þröskuldar í ákveðnum landshlutum sem eru kannski ekki í öðrum landshlutum. Við verðum líka að horfa til þess að jafna leikinn þarna vegna þess að ég veit það fyrir víst að það vantar ekki nýsköpunina, hugmyndaauðgina og frumkvöðlakraftinn á þessum svæðum. Við höfum sannarlega séð dæmi um það hvernig hann hefur nýst og gæti nýst enn frekar í þágu alls samfélagsins.

En mig langaði aðeins að víkja að, í mínu síðara andsvari, umræðunni um rammaáætlun og þetta fyrirkomulag, sem ég trúi að hafi verið sett á á sínum tíma í góðum hug til þess að þoka hlutunum áfram. Það er alveg ljóst að það eru flöskuhálsar í þessu kerfi og mér finnst umræðan aftur fara svolítið í annaðhvort/eða og það er umræða um að henda þessu fyrirkomulagi. Ég spyr: Er hægt að stagbæta það? Er hægt að laga það með einhverjum hætti þannig að það skili betri árangri vegna þess að í þessum málaflokki er tíminn líklega dýrmætasta auðlindin, að við getum nýtt tímann betur og komið okkur hraðar á verki þar sem við ætlum að fara af stað. Við verðum auðvitað líka alltaf að hafa þetta jafnræði gagnvart náttúrunni okkar og vernd hennar vegna þess að ég veit að við Íslendingar erum öll miklir náttúruunnendur í hjartanu. Þannig að, svona aðeins um rammaáætlun, hvernig væri hægt að tryggja betra ferli?