157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[18:54]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirtaks síðara andsvar. Hvernig getum við stagbætt rammaáætlun? Norðmenn t.d., ef ég kann söguna rétt, eru hættir með rammaáætlun. Ég er ekkert endilega að leggja það til. Kannski gætum við bara byrjað á því að fara eftir rammaáætlun. Það myndi örugglega bæta málið heilmikið. Í faghópi 3 á að meta samfélagslegu áhrifin. Þar eru sveitarfélögin. Það er tækifæri rammaáætlunar til að koma inn sjónarmiðum sveitarfélaganna og nærsamfélagsins og hagrænu áhrifunum fyrir svæðin og samfélagið allt. Kannski að það væri fyrsta skrefið, sem ég held að væri mjög góð nálgun.

Aðeins varðandi svæðin, af því að hv. þingmaður fór inn á mikilvægi þess fyrir svæðin að fá svona framkvæmdir í sitt nærumhverfi, þá er það þannig — og ég hef ekki langan tíma og ætla að reyna að koma þessu hratt frá mér — þegar maður var sveitarstjórnarfulltrúi og það voru að koma verkefni eftir verkefni, aðilar sem voru með litlar, meðalstórar eða stórar framkvæmdir sem þá langaði að koma með, t.d. heima í Skagafirði, þá enduðu þær alltaf á sama stað. Við enduðum alltaf hjá annaðhvort Landsneti eða Landsvirkjun sem sagði: Því miður, það er ekki nægileg orka á svæðinu. Og hvað gerðist? Verkefnin færðu sig þangað sem orkan var. Verkefnin fóru þangað og því skil ég vel hagsmunagæslu og hagsmunabaráttu sveitarfélaganna til að reyna að fá til sín aukna orku og þar af leiðandi tækifæri til að skapa fleiri störf og betri lífsskilyrði í sínum sveitarfélögum.