breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Ég vil þakka góða fyrirspurn. Ég held að þarna séum við með eitt mikilvægasta viðfangsefni sem við höfum fyrir framan okkur, þ.e. hvernig við getum t.d. tryggt almenningi og litlum og meðalstórum fyrirtækjum forgang og í raun ákveðið verðöryggi í þessum samkeppnisheimi. Ég er ekki með tæknilega lausn á því en fagnaði því eins og aðrir að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðaði strax á fyrsta degi sínum í embætti að þetta væri eitt af forgangsmálum sínum í ráðuneytinu og ég veit að það er einhver vinna í gangi en þetta er ekki alveg auðleyst.
En það verður í raun að leysa þetta og ég tek eftir að hér í ræðum er mjög mikið verið að rökstyðja einstaka virkjunarkosti eða orkuframleiðslu almennt, með rökum sem vísa til orkuöryggis almennings og fyrirtækja án þess að í lagaumhverfinu séu tryggingar um að tilteknar virkjanir eða jafnvel mjög mikil aukin orkuframleiðsla myndi auka það öryggi. Eins er verið að tala um tilteknar virkjanir og atvinnulíf á viðkomandi svæði þó að það séu ekki heldur neinar tryggingar fyrir því að þær virkjanir leiði til þess. Það mætti t.d. hugsa sér að öll orkan úr Hamarsvirkjun yrði notuð í rafeldsneyti og bara flutt úr landi. Þess vegna held ég að við verðum að dýpka þetta og ég viðurkenni að tæknilega lausn hef ég ekki enn þá séð en ég vona að það sé samstaða um markmiðið hérna í þessum sal.