157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

Störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Mér hefur stundum þótt skorta hér í þingsal á virðingu fyrir fyrirtækjum landsins og þeim verðmætum sem þau skapa. Atvinnulífið er ekki óþrjótandi auðlind sem hægt er að skattpína endalaust til þess eins að viðhalda metútgjaldagleði ríkisstjórnarinnar. Við verðum að fara að tengja okkur við raunheima og átta okkur á hvað það þýðir að taka súrefni úr atvinnulífinu, taka í burtu hvata og hækka endalaust skatta. Það lá fyrir á síðasta ári og kom skýrt fram í umsögnum þeirra sem best þekkja til og í umræðum hér í þingsal hverjar yrðu afleiðingar af gjalda- og skattahækkunum þessarar ríkisstjórnar. Verðbólga og þar með vextir myndu hækka, atvinnuleysi myndi aukast og ferðaþjónustan myndi dragast saman. Allt er þetta að raungerast, sem bitnar á hverjum? Jú, auðvitað heimilum landsins. Ríkisstjórnin keyrði hins vegar áfram með galopin augun. Engin aðvörunarorð dugðu til og okkur í minni hlutanum var sagt: Hættið að tala. Við höfum heyrt í ykkur. Kjósum og leyfið okkur að bera ábyrgðina.

Hvar er ábyrgðin núna? Ætlið þið að draga úr útgjöldum? Ætlið þið að lækka skatta? Ætlið þið að gefa atvinnulífinu eitthvert súrefni? Eða ætlist þið til að almenningur bæti kannski við sig vinnu á laugardögum til að borga hærri skatta, til að standa undir útgjaldagleðinni, gæluverkefnunum, loftslagssektum Evrópusambandsins, flugsköttunum og fleira þvíumlíku? En þá þyrfti fólk reyndar að geta bætt við sig vinnu. Atvinnuleysi er hins vegar að aukast. Þau sem eru á atvinnuleysisskrá eru sirka 40% Íslendingar og 60% útlendingar. Segir það ykkur eitthvað?

Ég nenni ekki lengur að spyrja um planið eða sleggjuna því að hún var augljóslega aldrei til. Nú er kominn tími til að bera ábyrgð á gjörðum ykkar, ekki fyrri ríkisstjórna heldur ykkar eigin gjörðum. Hvað ætlið þið að gera til að snúa þróuninni við?

Að því sögðu segi ég: Áfram Ísland!

(Forseti (): Forseti minnir þingmenn á að ávarpa ætíð forseta og nota 3. persónu.)