Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Svo virðist sem markaðsaðilar á skuldabréfamarkaði telji nú að næsti raunhæfi gluggi fyrir vaxtalækkun Seðlabanka Íslands verði hugsanlega ekki fyrr en í maí eða eftir fjóra mánuði. Þetta gefur skýra vísbendingu um verðbólguvæntingar og að óvissa muni halda vaxtastigi uppi lengur en heimili og fyrirtæki þola. Í því samhengi er mikilvægt að ræða drög að frumvarpi sem er í samráðsgátt sem snýr að innviðafélagi. Hugmyndin er skýr og í grunninn góð; að stofna sérstakt fjármögnunareignarhaldsfélag fyrir stór samgöngumarkmið og mannvirki, byggja upp sérþekkingu á innviðafjármögnun og hraða framkvæmdum. Við í Framsókn styðjum allar aðgerðir til að efla uppbyggingu innviða samfélagsins en hér er lykilatriði að hugmyndin að baki félaginu stendur og fellur að miklu leyti með flokkun félagsins.
Í greinargerð með frumvarpinu um stofnun félagsins er beinlínis miðað við að félagið verði svokallaður markaðsframleiðandi og geti flokkast utan hins opinbera sem C-hluti þannig að afkoma og skuldir falli ekki sjálfkrafa inn í A-hluta samstæðu ríkissjóðs. Þetta er gott og gilt eins langt og það nær en ef flokkurinn verður A-hluti í reynd þá erum við ekki að flýta framkvæmdum heldur að færa skuldir og áhættu inn á ríkissjóð með tilheyrandi áhrifum á lánakjör og svigrúm. Jafnvel þótt markmiðið sé C-hluti þá þarf fljótlega að liggja fyrir hvort félagið muni taka lán án ríkisábyrgðar, bera raunverulega áhættu og byggja tekjugrunn, m.a. með veiðigjöldum, þannig að markaðir treysti þessu fyrirkomulagi.
Virðulegur forseti. Ég hvet stjórnvöld áfram við mótun þessarar góðu hugmyndar (Forseti hringir.) en til að undirbúa hana þannig að hún dragi úr óvissu en auki hana ekki. — Síðan segi ég bara áfram: Áfram Ísland.