157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

Störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Rúnar Sigurjónsson (Flf):

Virðulegur forseti. Nýlega komu fram tölulegar upplýsingar um að innhringingum í neyðarsíma vegna sjálfsvíga hefði fjölgað verulega á síðasta ári. Þetta er sorgleg staðreynd og enn hryggilegra er að það fylgir sögunni að fjölgunin hefur verið mest í innhringingum frá ungu fólki. Það er full ástæða til að hafa miklar áhyggjur af þessari stöðu. Það er örugglega engin ein ástæða fyrir því að svo mörgu fólki, og það ungu fólki, líði svo illa að það íhugi sjálfsvíg. En getur það mögulega verið að við séum að vernda börnin okkar svo mikið og þau séu þá í svo mikilli fjarlægð frá neikvæðri upplifun að þegar kemur að unglings- og fullorðinsárum reynist tilvera þeirra þeim um megn?

Það getur verið mjög krefjandi verkefni að vera manneskja, sérstaklega í því mikla umróti sem orðið hefur á samfélaginu og ekki hvað síst vegna hraðari breytinga og samskipta á netinu. Á mínum uppvaxtarárum þótti eðlilegt að leita til foreldra þegar eitthvað bjátaði á eða á móti blés. Þá snerist umræðan oftar en ekki um að lífið væri enginn dans á rósum. Maður yrði að læra að taka jafnt á góðum gangi sem og mótlæti í lífinu. Allir verða fyrir mótbyr og margir verða fyrir einhvers konar áföllum ungir að árum. Það er sennilega aldrei brýnna en nú að foreldrar rækti samband sitt við börnin sín til að draga úr félagslegri einangrun þeirra. Það getur verið þroskandi að þurfa að takast á við mótlæti í lífinu en það er mikilvægt að börn og unglingar þurfi ekki að takast á við lífið ein og óstudd.

Virðulegur forseti. Við þurfum að taka þessa umræðu sem samfélag og átta okkur á því að til að framtíðarkynslóðir geti notið lífsins með öllum þeim hæðum og lægðum sem því fylgir þá þurfum við að fræða fólkið okkar, unga fólkið, um það hvers má vænta af lífinu og tilverunni. — Áfram Ísland!