157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

Störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að hrósa hæstv. heilbrigðisráðherra, Ölmu Möller, og hæstv. ríkisstjórn fyrir skýra forgangsröðun og fyrir að láta verkin tala í málefnum sem snúa að heilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni. Það er bæði ánægjulegt og mikilvægt að sjá að aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru farnar að skila áþreifanlegum árangri, ekki síst þegar kemur að biðtíma barna í heilbrigðiskerfinu. Þar höfum við öll beðið allt of lengi eftir raunverulegum umbótum og nú eru þær orðnar sýnilegar. Heilbrigðisráðuneytið hefur ráðist í markvissa greiningu á geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna og veitt sérstakt fjármagn til að vinna niður biðlista, m.a. vegna ADHD-greiningar barna og ungmenna á aldrinum 15–18 ára. Það er virkilega gott að fá viðbrögð frá foreldrum um að hreyfing sé komin á þessi mál. Með því að einfalda boðleiðir, auka skilvirkni og nýta betur þá sérþekkingu sem til staðar er hefur tekist að hraða ferlum og bæta þjónustu við fjölskyldur sem hafa beðið lengi. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt. Þar er talað bæði skýrt um að stytta biðlista barna, bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna nauðsynleg meðferðarúrræði. Þetta eru ekki orðin tóm heldur loforð sem nú er verið að efna.

Frú forseti. Þetta skiptir börn og forráðamenn þeirra öllu máli. Það skiptir samfélagið allt máli. Þegar við fjárfestum í heilbrigði barna erum við að fjárfesta í framtíð þjóðarinnar. Fyrir það á ríkisstjórnin þakkir skilið.