157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

Störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Flokkur fólksins var stofnaður af göfugri hugsjón. Auðvaldsstefna fyrri ríkisstjórna hafði leitt til þess að velferðarmál þjóðarinnar skiptu orðið litlu, samanber innantóman fagurgala Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar árið 2013 um stórbætt kjör til handa öldruðum á velflestan hátt. Flokkur fólksins steig fram árið 2016 til að sýna fram á að hinn raunverulegi auður liggur í blómlegu mannlífi, ekki bara á vinnumarkaði heldur líka heima fyrir. Við komum inn á Alþingi til að breyta stöðu þeirra verst settu. Markmið okkar voru og eru skýr og við höfum lyft grettistaki. Með stöðugum þrýstingi Flokks fólksins hafa málefni okkar loksins færst af jaðrinum inn í kjarnann í pólitískri umræðu, ekki framar innantóm loforð heldur raunveruleg verkefni sem skipta munu sköpum, skapa öryggi, stytta biðlista og tryggja mannsæmandi aðbúnað á efri árum.

Virðulegur forseti. Ef guð lofar þá verðum við gömul en þurfum jafnvel hjúkrun. Fyrir tilstilli Flokks fólksins er hafin uppbygging 460 hjúkrunarrýma og skýr stefna liggur fyrir að þau verði 1.500 við lok kjörtímabilsins. Við stígum stór skref í afnámi skerðinga, hækkun frítekjumarka og betri stöðu þeirra sem vilja og geta verið virkir án þess að afkoma þeirra sé sett í hættu. Það er að verða langþráð kerfisbreyting sem endurspeglar virðingu fyrir öllu fólki. Flokkur fólksins stendur fast á því að lífeyrir skuli duga til framfærslu, að almannatryggingakerfið þjóni fólkinu en ekki öfugt. Það er á brattann að sækja sökum langvarandi andvaraleysis en kerfið er að bifast í rétta átt og það er það sem skiptir máli. Áframhaldandi stuðningur kjósenda okkar er forsenda þess að hægt sé að klára verkin sem loksins var byrjað á. Hann tryggir mannúð og velferð sem verður (Forseti hringir.) aldrei aftur fórnað á altari skammtímahagsmuna. Áfram veginn, áfram Ísland.