Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að segja: Áfram Ísland, að sjálfsögðu. Það fer sennilega enginn í gegnum þetta líf án þess að greiða einhvern tímann tekjuskatt. Það er sjálfsagt mál að greiða hlut hluta af launum manns í sameiginlega sjóði svo lengi sem þeir fjármunir renna til mikilvægra mála, þ.e. nauðsynlegra verkefna á herðum hins opinbera; í uppbyggingu innviða og rekstur velferðarkerfisins. Nýlega var veiðigjaldið tvöfaldað, m.a. til að byggja upp vegakerfið á Íslandi. Frú forseti. Ég trúi því þegar ég sé það.
Kílómetragjaldið var, ótrúlegt en satt, líka lagt á til að byggja upp vegakerfið. Hvernig væri ef ríkisstjórnin myndi frekar ráðast í alvöruhagræðingu í ríkisrekstri og tæki t.d. fjárlagatillögur okkar Sjálfstæðismanna alvarlega? Við sem hér sitjum í þessum sal hljótum öll að geta sammælst um að það sé æskilegt að fólkið í landinu hafi meira á milli handanna í lok dags. Í stefnu Sjálfstæðisflokksins er tekið fram að stefnt skuli að einu virku skattþrepi. Það er frábært mál og býr til meiri hvata til að standa sig vel, enda verður þá meira eftir af sjálfsaflafé fólksins í þeirra vasa en ekki í vasa ríkisins. Eitt skattþrep er einfalt fyrir bæði launamenn og atvinnurekendur og til þess fallið að auka tekjur ríkissjóðs þegar fram í sækir vegna aukinna umsvifa í hagkerfinu. Með öðrum orðum: Allir græða ef rétt er að málum staðið.
Hér í þessum sal eru lægri skattar hins vegar málaðir eins og skrattinn á vegginn af núverandi meiri hluta: Synd og skömm ef meira verður eftir í vösum fólks í lok dags. Sú sem hér stendur vill beina því til hæstv. fjármálaráðherra að reyna að lækka tekjuskatt á einstaklinga í staðinn fyrir að auka kostnað á íbúa þessa lands með alls konar skattahækkunarfimleikum og nýyrðasmíð.