Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég var svo heppin að ná að hoppa í sólarhringsferð til Kaupmannahafnar síðasta sunnudag og náði þar að horfa á landsleikinn góða milli Íslands og Svíþjóðar, stórmerkileg stund. Þar sem ég var að keyra yfir brúna yfir Eyrarsund viðurkenni ég að ég fór að hugsa svolítið um leið, af því að þetta er í fyrsta skipti sem ég keyri yfir þessa brú, hversu svakalega djörf ákvörðun það hlýtur að hafa verið á sínum tíma að fara út í þessa framkvæmd. 7,8 km sem tengja saman Danmörku og Svíþjóð og gera það að verkum að það tekur 10–15 mínútur að keyra á milli þessara landa. Þarna er járnbraut, fjórar akreinar, og ég varð mjög hrifin af þessari framkvæmd þegar ég var að keyra þarna í fyrsta skipti á sunnudaginn. Þá varð mér svolítið hugsað til stórra ákvarðana og hvernig það er þegar svona stórar ákvarðanir eru teknar og hvers konar kjark pólitíkin þarf að hafa til að taka svona ákvarðanir. Ég held að þessi framkvæmd hafi kostað einhverja 600 milljarða á sínum tíma en er búin að skila sér margfalt til baka vegna þess að þarna var fólk sem tók stórar og djarfar ákvarðanir. Við stöndum núna frammi fyrir því, þessi ríkisstjórn, að taka stórar og djarfar ákvarðanir til að rjúfa kyrrstöðuna í vegamálunum okkar, í orkumálunum okkar og til að þoka okkur aðeins áfram, tryggja áframhaldandi verðmætasköpun og fjölgun tækifæra um allt land. Þetta tryggir byggðafestu, þetta tryggir verðmætasköpun og lífsgæði fyrir okkur öll.
Mig langar að hvetja okkur öll til að þora að horfa svolítið stórt og hugsa svolítið stórt og taka stórar ákvarðanir. Jafnvel þótt þær mæti tímabundinni mótstöðu er þessi ríkisstjórn með stóru myndina á hreinu. Hún ætlar að keyra áfram. Við erum að horfa til framtíðar og ég hlakka til að taka stórar og djarfar ákvarðanir.