Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vildi vekja athygli þingheims á því að í umræðu á sænska þinginu í gær boðaði fjármálaráðherra Svíþjóðar, Elisabeth Svantesson, rannsókn á mögulegri upptöku evru í Svíþjóð verði flokkurinn áfram í ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Nefndi hún m.a. hvernig staðan í heimsmálunum er að þróast sem ástæðu fyrir því að hún vilji sjá málið aftur á dagskrá. Það ber að nefna, frú forseti, að Elisabeth Svantesson er ráðherra Moderaterna, sem er systurflokkur Sjálfstæðisflokksins. Þetta er ekki úr lausu lofti gripið hjá Elisabeth Svantesson, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins í Svíþjóð hefur um árabil verið hlynntur því að taka upp evru í Svíþjóð og talaði flokkurinn m.a. fyrir því í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2003. Ulf Kristersson, formaður Moderaterna og forsætisráðherra Svíþjóðar, kallaði einnig eftir umræðu um evruna fyrir ekki löngu síðan. Tilefni þess að sænski forsætisráðherrann kallaði eftir þeirri umræðu var þrálát verðbólga, sveiflur á gengi sænsku krónunnar og þær afleiðingar sem slíkt hefur á fjármagnskostnað og þar með á heimili og fyrirtæki í landinu og samkeppnishæfni landsins. Þegar gjaldmiðillinn veikist hratt í verðbólguáfalli hækkar innflutt verð, óvissa eykst og vaxtabyrði verður þyngri. Í slíku umhverfi fara ábyrgir leiðtogar að velta því upp hvort stærra og stöðugra gjaldmiðilssvæði geti dregið úr þessum sveiflum og það í Svíþjóð, frú forseti, sem er talsvert stærra hagkerfi en Ísland, með sænsku krónuna, sem er talsvert stærri gjaldmiðill en sá íslenski og þar af leiðandi jafnframt stöðugri. Þar telja leiðtogar fulla ástæðu til að taka umræðu um gjaldmiðilinn upp að nýju í ljósi breyttra aðstæðna.
Hér eigum við líka að taka þessa umræðu, þingheimur, ríkisstjórn, atvinnulíf, verkalýðshreyfing og aðrir hagaðilar; þora að reikna dæmið, þora að horfa á reynslu annarra og ég hvet hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins sérstaklega til að skoða hvað þeirra skoðanasystkini í Evrópu eru að segja. Ræðum gjaldmiðlamálin af skynsemi og með hagsmuni Íslands að leiðarljósi.