157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:58]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni, framsögumanni málsins, fyrir ágæta yfirferð í þessu máli, sem er auðvitað mál sem við höfum lengi haft til umræðu og farið nokkra hringi með hér í þinginu. Vonir standa til að það geti þá fengið endanlega afgreiðslu núna. Ég tel að málið sé skref í rétta átt að ýmsu leyti. Þingflokkur Miðflokksins mun sannarlega styðja málið. Það er hins vegar margt sem hefur komið upp í umræðu um þetta mál sem hefur vakið sérstakan áhuga minn og kannski opnað augu okkar margra, vona ég, fyrir raunverulega úrlausnarefninu sem Ísland stendur að hluta til frammi fyrir í tengslum við umgjörð útlendingamála. Við fundum fyrir því í umræðum við hollenska þingmenn hér á dögunum, þar sem við vorum í ferð á vegum allsherjarnefndar, að þeir hafa mjög verið að fást við þá alþjóðasamninga sem Evrópuríki hafa verið aðilar að frá seinna stríði.

Það er flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna sem er til umræðu í þessu frumvarpi og sömuleiðis mannréttindasáttmáli Evrópu sem byggist mjög á flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna þegar kemur að útlendingamálum. Þar eru miklar kvaðir lagðar á þjóðríkin um ákveðna afgreiðslu þessara mála eins og að ekki megi senda menn úr landi nema þær ríku ástæður sem hér eru nefndar komi til. En þó ekki í ákveðnum tilvikum, t.d. þegar aðstæður eru þannig í heimaríki að það sé ekki hægt en þá lendir ábyrgðin í raun og veru okkar megin. Þessir þættir í frumvarpinu, það sem við höfum verið að kljást við í þessu og sömuleiðis það margvíslega regluverk sem fylgir þessum flóttamannasamningi og mannréttindasáttmálanum, hefur vakið mann til umhugsunar. Ef við byrjum á því hér: Telur hv. þingmaður — við erum auðvitað að leita okkar réttar og við teljum að við séum innan ramma þessa — að það sé tilefni fyrir íslensk stjórnvöld að leggjast á árar með þeim ríkjum sem hafa talað fyrir endurskoðun eða alla vega mikilli efnislegri umræðu um það hvaða kvaðir þessir samningar leggja á okkur?