157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:00]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Ég held að það hafi komið í ljós við vinnu nefndarinnar að þessir sáttmálar sem við erum aðilar að eru góðir. Þeir halda vel utan um þessa hluti og það er mikilvægt að tryggja að þeir verði áfram í fullri notkun. Öll mannanna verk er hægt að skoða með einhverjum hætti og það er auðvitað gert. Þó að flóttamannasamningurinn sé frá 1951 hefur hann auðvitað verið endurskoðaður nokkuð oft síðan þá, en ég held að þetta hafi staðist tímans tönn og sé bara mjög gott. Mig langaði kannski bara að beina spurningu til þingmannsins í þessu samhengi og fá hans sýn á þetta, hvort hann telji yfir höfuð rétt að við séum þátttakendur í þessum samningum, hvernig hann lítur á það, og hvort hann telji að það bindi hendur okkar of mikið í þessu samhengi.