157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:01]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna um það hvort ég telji samningana binda hendur okkar óþarflega mikið. Þeir binda hendur okkar. Við finnum það í þessari vinnu að við það að gera þessar breytingar, að veita stjórnvöldum heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd við ákveðnar kringumstæður sem við kveðum á um með okkar löggjöf, hafa aðilar á vegum samnings Sameinuðu þjóðanna, sem sjá um að túlka flóttamannasamninginn, gert athugasemdir við vinnulag okkar. Ekki að við teljum okkur ekki í rétti, við teljum okkur vera það. Engu að síður er ákveðinn ágreiningur um það hvort þau ákvæði sem við erum að leiða hér í lög standist samninginn. Ég tel því alveg augljóst út frá því að þetta bindur hendur okkar og að okkar mati í raun og veru óþarflega mikið ef við tökum túlkun þeirra inn í myndina.

Í sambandi við það hvort ég vilji taka þátt í þessum samningum. Ég held að við þurfum að vera heiðarleg með það að þeir hafa auðvitað ákveðið gildi alþjóðlega og það ber ekki að ana að neinu í þessum efnum. Hins vegar fullyrði ég og kveð mjög skýrt á um það að ef sá tímapunktur kemur að mat íslenskra stjórnvalda verður á þá leið að þetta sé einfaldlega of íþyngjandi fyrir okkur, til þess að við getum gætt hagsmuna landsmanna út frá þeim sjónarmiðum sem við leggjum til grundvallar, þá tel ég ekkert heilagt að vera hluti af alþjóðasamningum bara vegna þeirra. Ég vinn miklu frekar út frá hagsmunum samfélagsins og ef við komumst að þeirri niðurstöðu á einhverjum tímapunkti að við teljum okkur ekki stætt á að vera hluti af þessu þá bara verður svo að vera. Ég er hins vegar ekkert kominn að þeirri niðurstöðu á þessum tímapunkti. Ég tel hins vegar að í þessu máli sannist að hendur okkar eru mjög bundnar. Við lendum t.d. í því að jafnvel þótt við afturköllum vernd og að það sé vilji stjórnvalda, vilji landsmanna, að senda menn úr landi eftir slíka afturköllun — það er ekki vilji okkar í raun og veru að hafa þessa umbornu dvöl, en við neyðumst til þess út frá þessum skuldbindingum okkar og það er bagalegt að mörgu leyti. Tekur hv. þingmaður ekki undir það að það sé í raun og veru bagalegt að við séum ekki í færum til að senda menn úr landi þegar við höfum afturkallað vernd; annars værum við líklega ekki að afturkalla verndina? Ég veit auðvitað að spurningar í sambandi við það hvort svæði séu örugg eða ekki eru áleitnar en það er endalaust hægt að vera í hártogunum um það.