157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M):

Frú forseti. Við ræðum hér afturköllun alþjóðlegrar verndar en höfum stuttlega í umræðunni hér á undan líka komið inn á þetta heildarsamhengi útlendingamála í Evrópu. Á Vesturlöndum almennt byggjum við að mörgu leyti á samningum sem voru gerðir af sérstöku tilefni eftir síðari heimsstyrjöld og áttu að gegna því hlutverki að koma í veg fyrir ýmsar hrottafengnar aðstæður sem þá voru uppi — menn gátu hvergi farið á árunum eftir stríð en áttu samkvæmt þeim nýju sáttmálum sem þarna voru gerðir að hafa betra svigrúm til þess — og ef eitthvað slíkt skyldi endurtaka sig. Síðan líður tíminn og veröldin þróast. Flugsamgöngur breytast, alþjóðasamskipti taka breytingum, internetið kemur til, margmiðlun, símar. Sítengdur og alveg tengdur, alþjóðlega tengdur, heimur veldur því að þessi kerfi öll sem byggjast upp, t.d. í kringum flóttamenn og flóttamannasamninginn og mannréttindasáttmálann og réttindi manna sem eru að flytjast á milli landa, gagnvart því að fá að vera um kyrrt í þeim löndum þangað sem þeir koma — þetta tekur á sig aðra mynd í nýjum aðstæðum og verður að hluta til, eins og við erum að ræða hér, að tæki og leið til að flytja til Vesturlanda frá fjarlægum heimshlutum. Auðvitað er mikill hluti af þessu sannarlega fólk sem er að flýja hrottalegar aðstæður en annar og líka umtalsverður hluti þessara samninga verður þá að einhverju allt öðru, þ.e. eins konar glufu og leið inn til Vesturlanda sem opnast þá á grundvelli þessara samninga við breyttar aðstæður.

Ég tel mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því að við þurfum einfaldlega að vera opin fyrir umræðu um þessa alþjóðasamninga alla á þessum tímum. Það er ekki þar með sagt að menn séu að tala um að rjúka út úr þeim eða koma öllu í uppnám heldur bara að Ísland leggi sitt af mörkum í slíkri umræðu. Við sjáum t.d. að Danmörk, Ítalía, Austurríki, Pólland og Belgía hafa kallað eftir endurskoðun á mannréttindasáttmála Evrópu, einmitt í tengslum við réttindi hælisleitenda sem hafa gerst sekir um lögbrot. Þessi umræða sem við erum í hér er því engan veginn einskorðuð við Ísland heldur er hún hluti af alþjóðlegri umræðu. Það eru allir að kljást við þetta. Það eru líka allir að kljást við þetta í víðari skilningi í hælisleitendakerfinu. Í ferð á vegum allsherjarnefndar til Hollands ræddum við við þingmenn sem höfðu verið hluti af ríkisstjórn sem nýverið hafði sprungið, þar sem ágreiningurinn var að mörgu leyti um það hversu langt stjórnvöld ætluðu sér að ganga innan þess ramma sem þau teldu sig hafa gagnvart alþjóðasamningum; þeir eru með hælisleitendamál, þeir eru komnir í ógöngur á því sviði, þeir vilja gera róttækar breytingar og svo eru menn með ólíkt lögfræðilegt mat og kannski pólitískt mat, alþjóðlegt pólitískt mat, á því hversu langt menn eru tilbúnir til að teygja sig innan þess ramma sem þeir telja sig hafa. Ein niðurstaðan í þessu samtali var sú að þetta hefði alla vega haft mjög neikvæð áhrif á samstarf í ríkisstjórn; bara ágreiningur um þessi atriði, hversu miklar heimildir menn teldu sig hafa innan þeirra alþjóðasamninga sem þeir eru hluti af.

Þar erum við að tala um kerfi eins og t.d. hælisumsóknir þeirra sem hingað eru komnir, eins og við erum að tala um hér, og hafa þar með rétt til þess að sækja um hæli hér; hvatarnir í kerfinu eru þá þannig að í raun og veru er þér umbunað fyrir að ná að smygla þér til Evrópu með einum eða öðrum hætti. Það er hvatinn núna vegna þess að þá er ríkið skyldugt til að taka mál þitt til umfjöllunar. Er það eðlilegur eða góður hvati eða viljum við snúa þessu algjörlega við? Ekki þannig að við séum endilega að hjálpa færra fólki en þá þannig að við höfum stjórn á flæðinu inn til okkar, að við séum ekki með þessa hvata um að menn þurfi bara að stíga fæti inn í landið og þar með vera komnir með ákveðnar heimildir sem við eigum erfitt með að uppfylla eða viljum jafnvel ekki, af pólitískum ástæðum og út frá vilja almennings, uppfylla. Þetta er svona samhengi þessarar umræðu, þ.e. að við erum að tala um þessa sáttmála sem eru samdir í ákveðnu umhverfi og eru síðan notaðir í allt öðru samhengi.

Við erum hér að tala um að afturkalla alþjóðlega vernd hjá þeim sem hafa brotið af sér, ýmist alvarlega eða ítrekað, og frá upphafi þessa máls höfum við náttúrlega fjallað um það hvort þetta eigi aðeins að eiga við um „mjög alvarleg brot“ eða „sérstaklega alvarleg brot“ eða einnig „ítrekuð afbrot“. Það var nú þannig hér í vor að upphaflega stóð til af hálfu ríkisstjórnarinnar að fjalla í þessu nýja ákvæði um afturköllun alþjóðlegrar verndar um sérstaklega alvarleg brot, sem ógna samfélaginu eða allsherjarreglu eins og mig minnir að það hafi verið orðað, þ.e. sérstaklega alvarleg brot voru skilyrði. Við vitum auðvitað að sérstaklega alvarleg brot eru túlkuð mjög þröngt og þar inni eru alvarlegustu ofbeldisbrotin, morð, manndráp og annað eins, en ekki mikið annað. Tillaga okkar í minni hluta allsherjarnefndar var að hafa þarna inni ítrekuð brot. Upphaflega mætti það mótstöðu af hálfu ríkisstjórnarinnar, þ.e. talsmanna frumvarpsins í ríkisstjórn, en það næsta sem við vissum var að um haustið kom frumvarpið inn þar sem búið var að innleiða þessi ítrekuðu brot í breytt ákvæði. Að mínu mati var það fagnaðarefni þótt hæstv. dómsmálaráðherra hafi nú hikað við að viðurkenna okkar þátt í málinu. En það er eins og gengur og gerist í pólitíkinni. Efnislega er það það sem skiptir máli að þarna voru komin inn ítrekuð brot. Ef við hugsum þetta t.d. út frá umræðum sem við í allsherjarnefnd höfum átt við fulltrúa frá Sameinuðu þjóðunum, sem hafa gert athugasemdir við okkar nálgun í þessu máli eða nálgun Alþingis, þá var, minnir mig, tekið til þess að óvíða í sambærilegum ákvæðum þjóða væri fjallað um þessi ítrekuðu brot, þ.e. það væri nokkuð sérstakt og sér á báti út frá því hvernig sambærileg ákvæði hafa verið leidd í lög annars staðar. Ég læt það ekki trufla mig persónulega. Ég tel enn þá að við höfum heimildir til þess að setja þessi lög hér á Alþingi út frá mannréttindasáttmála Evrópu, sannarlega. En við höfum ekki verið að ræða hann sérstaklega mikið í þessu sambandi. Flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna veitir okkur skv. 2. gr. ákveðna heimild til þess að bregðast við því þegar menn brjóta lögin. Ég get lesið þessa 2. gr. flóttamannasamningsins upp, ef maður finnur hana hér einhvers staðar. Hún er alla vega þannig í minni þýðingu að sérhver flóttamaður beri skyldur gagnvart því ríki sem hann dvelur í, einkum hvað það varðar að fara eftir lögum þess og reglum svo og þeim ráðstöfunum sem gerðar eru til að halda uppi allsherjarreglu. Út frá þessu teljum við okkur einfaldlega fært að kveða á um að menn sem hafa brotið lög séu búnir að brjóta gegn sínum hluta samningsins og þar með falli þetta brott. Við erum ekki einu sinni að senda menn úr landi hvort eð er. Við erum bara að svipta þá verndinni. Þar með verður alveg augljóst að við þurfum heldur ekki, í ákvæðinu eins og það er í breytingartillögu minni, að vísa til þess endilega að þetta ógni sérstaklega allsherjarreglu eða að þetta sé sérstaklega hættulegt samfélaginu. Ég tel að það leiði af því að menn séu í ítrekuðum afbrotum hér á landi, þ.e. að það ógni allsherjarreglu. Sömuleiðis að þar með hafi menn brotið gegn þessum samfélagssáttmála sem ég tel að við gerum með því að veita mönnum alþjóðlega vernd. Ítrekuð brot — það er sem sagt ákveðin séríslensk regla, að mér skilst, sem er verið að innleiða með þessu, sem er bara sjálfsagt. Ég er ekkert hræddur við séríslenskar reglur. Það er mikið talað gegn þeim í umræðum um útlendingamál, að við eigum ekki að hafa séríslenskar reglur. Við eigum bara að hafa séríslenskar reglur þegar þær henta hagsmunum íslensks samfélags. Við þurfum ekkert alltaf að bera okkur saman við annaðhvort lægsta eða hæsta samnefnara á Norðurlöndunum. Við þurfum ekki alltaf að réttlæta þessi skref með slíkri vísan. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því. Við þurfum einfaldlega að gæta hagsmuna samfélagsins.

Hvort þetta hafi einhverjar afleiðingar — ég tel það mjög ólíklegt. Ég held að menn hafi gert sínar athugasemdir. Við förum fram með okkar túlkun og við það er látið sitja. Við leiðum þetta einfaldlega í lög og þar með höfum við þessa heimild til þess að afturkalla verndina. Hvað gerist þegar við afturköllum verndina? Það er auðvitað stóra spurningin í þessu máli og það er stóra gloppan að mörgu leyti í þessu máli. Það hljómar auðvitað þannig, þegar við tölum um þetta, að þetta muni hafa afgerandi afleiðingar, hafa mikil áhrif. En þegar við skoðum þetta nánar þá höfum við, skv. þessari 72. gr. útlendingalaga, ekki heimild til að senda menn úr landi ef ástandið er talið hættulegt þar. Í mörgum þessara tilvika var gert ráð fyrir því að jafnvel þótt við afturköllum verndina þá getum við ekki sent menn úr landi. Hvað gerist þá? Við búum til nýjan dvalarleyfisflokk sem við kennum við umborna dvöl. Þetta á sér svo sem fyrirmyndir annars staðar en er ekki dvalarleyfisflokkur, samkvæmt mínum skilningi á því hvernig málum hefur verið háttað erlendis, sem vekur mikla lukku yfirvalda. Þetta er flókinn flokkur. Þarna eru menn í hálfgerðu einskismannslandi í landinu. Það er búið að svipta þá rétti sínum og aðgangi að ýmsum gæðum. Þeir hafa greinilega þegar gerst sekir um alvarleg brot og út frá þeirri stöðu getur maður ætlað að þeir hafi býsna litlu að tapa. Þeir fá engu að síður að ganga lausir hér á landi í umborinni dvöl svokallaðri og við Íslendingar þurfum þá að lifa við það, að búa við það. Um sama leyti stendur til að koma á fót svokölluðu brottfararúrræði. Mér hefur skilist á hæstv. ríkisstjórn að þessir menn sem enda í umborinni dvöl séu ólíklegir til þess að enda í brottfararúrræði eða búsetuúrræði. Ég veit samt ekki hvernig þróunin verður nákvæmlega, hvað á að gera við menn sem eru komnir í þessa stöðu. Þetta er einfaldlega óvissa sem við erum í raun og veru að fara út í með þessu, með þessari umbornu dvöl. Þar minni ég aftur á alþjóðasamningana og nauðsyn þess sömuleiðis að íslensk stjórnvöld, jafnvel í samstarfi við Evrópuríki, við önnur ríki sem eru í sambærilegri stöðu, vinni að því að tengjast eins konar miðstöðvum, jafnvel utan Evrópu, þangað sem senda megi menn sem hafa komið sér í þessa stöðu en ekki er hægt að senda til heimalandsins samkvæmt þessum alþjóðasáttmála. Ef við ætlum að fylgja þeim áfram eins og stefnan er verðum við samt að gæta hagsmuna íslensks samfélags með einum eða öðrum hætti og sömuleiðis senda þau skilaboð að hingað er ekki í boði að koma til þess að brjóta lög.

Ef maður tekur þetta saman þá tel ég að okkar breytingar, mín breytingartillaga og tillögur stjórnarinnar sem ég mun styðja jafnvel þótt ég geri ekki ráð fyrir að meiri hlutinn styðji endilega breytingartillögu mína — þótt ég telji að það væri hættulaust vegna þess að hún gengur eiginlega bara út á það að binda ekki hendur löggjafans óþarflega við matið á því hvenær við afturköllum alþjóðlega vernd. Ég tek þarna út í minni tillögu, ef menn glöggva sig á því, ákvæði um allsherjarreglu og almannaöryggi, enda tel ég það einfaldlega augljóst að með því að vera ítrekað að brjóta lög sé maður að ógna allsherjarreglu. Ég tel ekki að íslenski löggjafinn þurfi sín megin að standa í því að færa rök fyrir því í hvert skipti sem þetta er gert. Gagnvart samningnum er það augljóst. Þetta er ógn við allsherjarreglu. Hérna heima þurfum við ekki að vera að binda hendur dómenda og annarra sem ætla að beita þessu ákvæði. Það er ástæðulaust og út á það gengur breytingartillaga mín. Ég sé einnig að hv. þm. Brynjar Níelsson, sem hefur komið hingað inn í þingið af krafti, kemur sömuleiðis inn með breytingartillögu sem ég hef glöggvað mig aðeins á. Mér sýnist ekki að hún sé í grundvallaratriðum efnislega ólík því sem ég legg til í minnihlutaálitinu. Þarna er aðeins farið út í smáatriði um það hvaða mál er um að ræða og sömuleiðis er orðið „ítrekað“ látið falla brott og þá erum við komin út í það að hér sé einfaldlega verið að afturkalla verndina á grundvelli lögbrots. Punktur. Það er alla vega eins og ég skil tillöguna. Engu að síður er þetta samt ekki bara afbrot vegna þess að það er talið að menn þurfi að ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Þú getur annaðhvort haft þetta ítrekað og punkt þar á eftir eða lögbrot sem ógnar allsherjarreglu eða almannaöryggi. Í raun og veru er það útfærsluatriði. Það er sjálfsagt að taka frekari umræðu hér í þingsalnum í dag og ræða það hvernig þetta skal nákvæmlega orðað. Þetta getur haft áhrif á túlkunina í framkvæmdinni síðar meir vegna þess að við eigum líka eftir að sjá hvernig hefð skapast í kringum svona afturköllun á grundvelli þeirra laga sem við erum að setja núna. Hvað menn fara almennt að líta á sem t.d. nægilega ítrekuð brot — af hálfu meiri hlutans þurfa þessi ítrekuðu brot að ógna allsherjarreglu o.s.frv. Þetta eru svona kvaðir sem við leggjum á framkvæmdaraðilann til að réttlæta þetta. Það er sjálfsagt að taka umræðu um það hvort þetta þurfi að vera ítrekað almennt en ég held að einhver umræða hafi verið um að eitt afbrot eitt og sér, ef það er vægt, sé mögulega ekki nægilegur grundvöllur til þess. Ég er alveg tilbúinn til að taka umræðu um að það sé bara alveg hægt að ræða það líka út frá því sem ég segi, sem er líka kjarni í okkar málflutningi, þ.e. að mér finnst einfaldlega að ef menn hafa hlotið hér alþjóðlega vernd þá sé það ákveðinn sáttmáli sem við gerum um að þeir séu ekki hér í þeim tilgangi að brjóta lög, að það sé ekki í lagi hér að brjóta lög. Ég tel það líka illt afspurnar fyrir Ísland að mildilega sé tekið á slíku. Það er það.

Að öllu þessu sögðu þá er þetta ágætt mál og minnir okkur á nauðsyn þess að við látum til okkar taka í umræðu um þetta alþjóðlega kerfi. Að öðru leyti munum við ekki gera annað en að stuðla að framgangi þessa máls enda þótt hér séu vissulega margir tæknilegir þættir sem er sjálfsagt að taka til ítarlegrar umræðu í þinginu í dag.