157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:20]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Það vakti athygli mína að hann byrjaði á að fara yfir sögu kerfisins. Það er rétt sem hann segir að þessi flóttamannasamningur frá 1951 er í raun settur á laggirnar í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar til að bregðast við flóttamannastraumi sem var í gangi eftir lok hennar. En svo spólaði hv. þingmaður aðeins fram áratugina og talaði um að heimurinn hefði farið að opnast, að flugsamgöngur hefðu farið að breytast og við værum komin í aðra heimsmynd sem hann kallaði svo, ef ég skildi hann rétt, og að hans mati þyrftum við að taka samningana upp. Núna væri fólk frá öðrum heimshornum farið að ferðast til Evrópu og nýta sér þessa sáttmála.

Mig langaði að spyrja þingmanninn hvort það sé rétt túlkun á því sem hann var að segja, þ.e. að ástæðan fyrir því að það þurfi að taka þessa samninga upp sé sú að nú sé fólk úr öðrum heimshlutum farið að ferðast til Evrópu og nýta sér þessa sáttmála. Ég spyr þá líka hvort þingmaðurinn myndi þá telja að ef við vildum uppfæra sáttmálana þá ættu þessi mannréttindi bara að ná til þeirra sem eru frá Evrópu en ekki til þeirra sem eru utan Evrópu. Er það um það bil uppleggið sem þingmaðurinn er að leggja út frá?