157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:21]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir góða spurningu. Í sambandi við það að taka upp samningana þá er ég ekkert viss um að það sé endilega — jú auðvitað að taka þá upp svo að við getum tryggt okkar hagsmuni en þó sem aðilar að þessum samningum. Við lifum sannarlega breytta tíma og ég held að Evrópa þurfi að hugsa um sína innflytjendapólitík. Ef menn vilja t.d. hafa opið fyrir fólk úr öðrum heimsálfum, Afríku, Asíu og Ameríku, inn í Evrópu þá finnst mér það sjálfsagt og lýðræðislegt, þ.e. ef menn vilja komast að þeirri niðurstöðu. Ég tel það ekkert stórkostlega skynsamlegt í meiri háttar mæli en ef menn komast að þeirri lýðræðislegu niðurstöðu, ef stjórnvöld hafa áhuga á að hafa það þannig, þá geta menn bara tekið þær ákvarðanir á vegum stjórnvalda. Ef það gerist hins vegar gegn vilja eiginlegra stjórnvalda og þar með gegn vilja almennings að opið sé inn í slíkar leiðir á grundvelli samninga sem eiga að tryggja mönnum vörn í neyð — eins og liggur fyrir í skýrslum og umfjöllun um þessi mál er þetta ekki alltaf spurning um fólk í neyð heldur líka um fólk í leit að betra lífi. Að sjálfsögðu hefur það fólk frjálsan rétt til þess að leita að betra lífi og maður skilur auðvitað hvaða aðstæður reka menn til slíkrar viðleitni. En Evrópa verður að passa upp á þróunina í sínum ríkjum. Ef það þýðir á einhverjum tímapunkti að þessir samningar séu ósjálfbærir hvað varðar markmið stjórnvalda um innflytjendastefnu, að þeir fari bara einfaldlega þvert á þau markmið, þá tel ég að það eigi ekki að vera neitt feimnismál fyrir stjórnmálamennina að ræða hvaða hagsmunir okkar eru að skaðast af þessum samningum og hvaða hagsmunir okkar eru tryggðir með þessum samningum. Og það getur vel verið — við áttum okkur líka á því að þessir samningar eiga að tryggja okkar rétt ef við lendum í sambærilegri stöðu. Það er kannski hugsunin að baki þessu þótt manni finnist það sem betur fer fjarstæðukennt að svo verði á okkar tímum. En grundvallarpunkturinn er sá að innflytjendapólitík á að ákvarðast af lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum en ekki að vera þvingað upp á þjóðirnar af alþjóðlegum einingum sem hafa ekki lýðræðislegt umboð.