útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar við andsvari. Það er áhugavert að velta þessu svona upp, að mannréttindi séu ekki algild heldur einhvern veginn bundin við það hvaðan þú kemur úr veröldinni. Þessir sáttmálar sem við erum að ræða um snúast auðvitað ekki um innflytjendapólitík heldur um það að tryggja mannréttindi einstaklinga óháð því hvaðan þeir koma. Það var svolítið mikið talað um þessa sáttmála eins og þetta væri svona utanaðkomandi ógn, einhver alþjóðleg samtök sem væru að taka ákvarðanir fyrir hönd Íslands. En auðvitað er það þannig að við gerumst aðilar að þessum samkomulögum og við höfum líka innleitt sambærilegar reglur í okkar lög. Það sem hefur helst verið til umfjöllunar í nefndinni er það að aldrei megi senda einstakling, þó að búið sé að svipta hann réttindum eða alþjóðlegri vernd, til lands þar sem hann eigi á hættu að verða fyrir pyntingum, manndrápi eða ómannúðlegum aðstæðum. Þetta er í raun sú hindrun sem þessir sáttmálar eru að veita. Þá hindrun má líka finna í íslenskum útlendingalögum og í raun einnig í stjórnarskrá Íslands. Það eru því ekki einhver alþjóðleg samtök sem eru að setja mjög íþyngjandi kröfur. Þetta eru talin grundvallarmannréttindi fólks.
Mig langaði aðeins í seinna andsvari að spyrja út í þá hugmynd sem þingmaðurinn velti hér upp varðandi það að senda flóttafólk til þriðja ríkis. Ef ekki sé hægt að senda það aftur til síns heimalands, vegna þess að þá eigi það á hættu að vera annaðhvort drepið eða pyntað, þá eigi að senda það til þriðja ríkis. Mig langaði aðeins að spyrja þingmanninn hvort hann telji að þessir mannréttindasáttmálar ættu þá að gilda um aðbúnað í þeim þriðju ríkjum og værum við þá skuldbundin til að greiða fyrir þessa þjónustu. Þætti honum það betra en að hafa fólk í umborinni dvöl að senda það til öruggs þriðja ríkis sem þarf þá líklegast að uppfylla sömu mannréttindaskuldbindingar? Viðkomandi ríki þyrftu þá líklega að vera einhvers konar leigutaki á einhvers konar rýmum og greiða fyrir þessa þjónustu og hve lengi ætti að greiða fyrir hana? Í rauninni, þegar maður fer svona að reyna að sjá þetta fyrir sér, þá á maður erfitt með að sjá þetta dæmi ganga upp.