útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir frábæra spurningu. Hann víkur reyndar að nokkrum þáttum. Í sambandi við það hvort íslenska ríkið myndi greiða fyrir slíka þjónustu eða ganga úr skugga um að mannréttindi væru virt í þessu þriðja ríki þá held ég einmitt að slík vinna sé í gangi af hálfu Evrópusambandsins, einmitt að leita leiða til þess að notast þá við ríki þar sem með einum eða öðrum hætti er a.m.k. hægt að vonast til þess að mannréttindi séu virt.
Þegar hv. þingmaður er að tala um mannréttindi, hvort maður sé að reyna að gera upp á milli fólks eftir því hvaðan það kemur, vil ég benda á að við erum eyríki, það eru 354.000 manns sem búa hér. Það eru fleiri milljarðar þarna úti í heimi. Ef við sæjum aðstæður þeirra getum við léttilega komist að þeirri niðurstöðu að það sé svona tæpt hvort það fólk njóti sömu mannréttinda og við bara almennt á heildina litið. Mannréttindi eru víða um heim, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, fótum troðin og við erum ekki að taka á móti öllum þeim sem líða fyrir slík mannréttindabrot. Bara það að það sé að gerast þýðir einfaldlega ekki að mínu mati að við eigum að hafa þannig umgjörð utan um útlendingamál hér að það skaði hagsmuni íslensks samfélags og sé gegn vilja samfélagsins. Það þýðir ekki að maður harmi ekki mannréttindabrotin.
Ef við tölum síðan um það hvort þessi alþjóðlegu samtök og þessarar alþjóðlegu einingar séu að binda hendur okkar þá eru þau að reyna að binda hendur flokks hv. þingmanns. Flokkur hv. þingmanns, Samfylkingin, er í ríkisstjórn og er að leggja fram frumvarp sem fulltrúar Sameinuðu þjóðanna gera athugasemdir við og halda fram að sé ekki í samræmi við flóttamannasamninginn. Hv. þingmaður þekkir það því á eigin skinni hve íþyngjandi það getur verið að þurfa að mæta þessum kröfum þegar við erum ósköp sakleysislega að reyna að tryggja hagsmuni íslensks samfélags. Það er það sem við erum að gera og við þurfum bara að halda áfram að gæta okkar réttar innan þessa og það gildir líka ef við förum í umræður um endurskoðun á sjálfum samningunum.