157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:28]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú að byrja á því að fagna því að loksins hafi komið fram frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar. Þetta hefur verið vandamál mjög lengi. Af því að ég sé hv. þm. Jón Gunnarsson hér þá vorum við saman í ráðuneytinu á sínum tíma og fengum talsverðar athugasemdir frá samstarfi Schengen-ríkjanna um að við værum ekki að uppfylla þau skilyrði sem þau ríki væru að setja okkur. Alþjóðleg vernd hér er ekki einkamál Íslands, menn verða að muna að það er ekki einkamál Íslendinga. Þegar menn eru komnir með alþjóðlega vernd hér þá geta þeir verið hvar sem er. Schengen-ríkin voru ekki ánægð með að ekki væri hægt að afturkalla vernd hér þrátt fyrir ítrekuð brot og að þetta fólk væri laust um alla Evrópu. Það gengur auðvitað ekki. Þess vegna voru þau sífellt að gera athugasemdir við okkur. Það er því mjög gleðilegt að þetta mál skuli koma fram.

Ég verð hins vegar að segja að ekki er alveg farið eftir því sem um var samið milli ESB og samstarfsríkja Schengen. Í reglugerð ESB 2024/1347 var gert ráð fyrir því að ef menn gerðust brotlegir með þessum hætti, ef um væri að ræða alvarleg brot, yrði það skylda að afturkalla alþjóðlega vernd. Þess vegna legg ég til hér að þessu verði breytt þannig að það verði skylda að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar þegar gildar ástæður eru til, ef um er að ræða hættulegan mann gagnvart öryggi ríkisins eða mann sem hefur fengið endanlegan dóm fyrir alvarleg brot og er þar af leiðandi hættulegur samfélaginu. Þetta er meira í samræmi við þá reglugerð sem um ræðir. Síðan er tillaga hér um að víkka þetta og að þetta nái til fleiri brotaflokka, þetta er gert nákvæmara. Þar er gert ráð fyrir að þetta sé heimilt en ekki skylt, en varðandi þessi alvarlegu brot þá sé þetta einfaldlega skylda en ekki heimild.

Ég er líka með tillögu hér sem má kannski ræða betur, ég skal viðurkenna það. Hún er á þann veg að orðið „ítrekuð“ falli brott varðandi breytingar á 2. mgr. 40. gr. laganna. Þar er samt verið að tala um afbrot sem ógna allsherjarreglu og almannaöryggi en þau myndu þá falla undir þessa heimild en ekki skylduna. Með því að fella niður orðið „ítrekuð“ — ef menn hafa á annað borð gerst brotlegir með því að ógna allsherjarreglu og almannaöryggi, þetta eru auðvitað mikilvægir flokkar, þá sé ekkert verið að leyfa mönnum að gera þetta svona reglulega og endurtekið. Hvað þýðir þá „ítrekuð afbrot“? Þýðir það tvisvar, þrisvar, fjórum sinnum, fimm sinnum eða sex sinnum? Úr því að þetta er hvort eð er heimilt þá geta menn bara metið það í hverju tilviki fyrir sig hvort ástæða sé til þess miðað við brotið, hversu alvarlegt það er, að afturkalla þessa alþjóðlegu vernd.

En síðan kemur stóra vandamálið í þessu öllu saman. Þessar mikilvægu breytingar á lögunum er eiginlega verið að eyðileggja með breytingartillögu meiri hluta allsherjarnefndar með því að segja: Við afturköllun alþjóðlegrar verndar skv. e- eða f-lið 1. mgr. skal stjórnvald taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þarna er bara einhvern veginn verið að kippa stoðunum undan þessu sem er svo sem alveg í samræmi við málflutning þeirra flokka sem sitja í ríkisstjórn. Hér áður fyrr þegar við vorum að reyna að breyta þessu, í meiri hlutanum þá, voru þeir alltaf á móti þessu. Við komumst aldrei neitt áfram með þetta, það var aldrei meiri hluti á þinginu fyrir þessu. Það kemur þess vegna ekkert á óvart að sjá þetta ákvæði hér. Þá verður þetta auðvitað alltaf þannig að það þarf að meta í hverju tilviki fyrir sig hvort mannúðarsjónarmið séu undir og venjulega er það þannig að það eru alltaf einhver mannúðarsjónamið inni í myndinni. Þannig er verið að gera það að verkum að þessi breyting, að það sé heimild til afturköllunar, missir nokkurn veginn marks. Ég held að það sé ekki gott. Við verðum bara að tryggja það að ef menn gerast brotlegir við hegningarlög, í brotaflokkum sem við vitum eiginlega að eru reknir sem skipulögð glæpastarfsemi — þó að við teljum brotin ekki öll vera alvarleg, þá eru þessir brotaflokkar þannig að menn koma hér sérstaklega til að stunda skipulagða glæpastarfsemi. Við vitum þetta. Það þorir enginn að segja þetta en við vitum þetta. Þess vegna verður að vera skylda að hluta og heimilt að hluta til að geta afturkallað vernd eftir alvarleika brotanna. Og breytingartillagan snýst um það. Hún snýst um þessi atriði, að við höfum rúmar heimildir, stundum skyldu og stundum rúmar heimildir, til að afturkalla alþjóðlega vernd, annars munum við ekkert ráða við þetta verkefni. Sumum kann að finnast það mjög djarft hjá mér að ganga svona langt en ég held að þróunin sé bara í þessa átt alls staðar. Menn eru alveg búnir að missa tökin á þessu. Skipulagðir glæpahópar eru að taka undir heilu samfélögin innan landanna og enginn ræður við eitt né neitt. Lögreglan getur varla farið inn í þessi hverfi. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þróunin er í þessa átt og við verðum að standa í lappirnar og geta tekið þessa ákvörðun.

Ég heyrði hér áðan að menn eru mjög uppteknir af mannréttindum, að þetta sé orðið mannréttindamál. Hver einstök þjóð getur ákveðið það sjálf með sínum lögum að veita alþjóðlega vernd. Ef sjálfstæðar þjóðir geta ákveðið hvort einhverjum er yfir höfuð veitt alþjóðleg vernd þá geta þær líka ákveðið að hvaða skilyrðum uppfylltum hægt er að afturkalla hana. Ef menn ætla að fara út í mjög frjálslega túlkun á einhverjum mannréttindasáttmálum, á einhverju sem sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja eða einhverju öðru, þá blæs ég algerlega á það. Sem sjálfstæð þjóð stjórnum við þessu. Við stjórnum því hverjum við veitum alþjóðlega vernd og við stjórnum því að hvaða skilyrðum uppfylltum við afturköllum hana. Við gætum auðvitað verið bundin af einhverjum sáttmálum um það hvernig málsmeðferðin skuli vera en efnisregluna ákveðum við sjálfir, það ákveður það enginn fyrir okkur. Það er grundvallaratriði. Við þurfum að kunna hvernig málsmeðferðin getur farið fram o.s.frv., það getur komið inn á einhverja mannréttindasáttmála, en við ráðum því að hvaða skilyrðum uppfylltum við getum afturkallað alþjóðlega vernd. Ég hafði þessa breytingartillögu tiltölulega djarfa svona til umfjöllunar. Það má vel vera að hægt sé að skoða þetta betur, þetta er kannski ekki alveg hugsað til enda. En þetta er alla vega innlegg í þá umræðu að menn skoði það alvarlega hvernig við getum tryggt að hér séu ekki menn með alþjóðlega vernd sem eru að stunda hér alvarleg afbrot og eru ógn við samfélagið, ógn við okkar lífsgildi, ógn við fjölskylduna o.s.frv.; að við höfum þá alla vega úrræði til að bregðast við því.