útlendingar.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir prýðilega breytingartillögu sem ég vona að nái hér fram að ganga. Ég hef heyrt það ítrekað í þessum þingsal að fyrri ríkisstjórn hafi ekki komið hinu og þessu í gegn. Í þessu máli finnst mér það frekar sérstakt í ljósi þess að það lá alveg fyrir að Viðreisn og Samfylkingin voru mjög mikið á móti öllum málum þegar kom að útlendingamálum. Fyrsta spurningin er: Ef þeir flokkar hefðu ekki staðið í vegi fyrir þessu hefði þá ekki verið meiri hluti fyrir þessu á síðasta þingi og hefðu málin þá ekki þokast meira áfram? Þeir stóðu í vegi fyrir því síðast. Miðflokkurinn mun ekki standa í vegi fyrir því núna og ég efast um að þingmenn annarra flokka muni standa í vegi fyrir því að útlendingamálin nái fram að ganga.
Í frumvarpinu er talað um að málið snúist um það að vísa megi fólki burt sem hefur fengið endanlegan dóm fyrir alvarlegt brot, er hættulegt samfélaginu og í breytingartillögunni er lagt til að orðið „ítrekuð“ verði fellt brott, þannig að hægt sé að vísa fólki burt þó að það hafi ekki ítrekað brotið af sér. Það sem mig langar að spyrja um er: Af hverju á þetta bara við um alvarleg brot og þá sem eru hættulegir samfélaginu? Eigum við ekki bara að vísa fólki burt þó að ekki sé endilega um alvarleg brot að ræða? Ef fólk kemur hingað gagngert til að brjóta af sér og fær vernd, þurfum við ekki að rýmka þetta þannig að ekki sé einungis um alvarleg brot að ræða?