157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:41]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Fyrri ríkisstjórn var við völd í sjö ár, ég var með henni fyrstu fjögur árin. Ég man alveg hvernig þetta var. Ég man sérstaklega eftir því, þegar ég var hættur á þingi og sat inni í dómsmálaráðuneyti, að þessar tillögur sem menn voru að reyna að búa til, ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í dómsmálum, náðu bara ekki í gegnum ríkisstjórn. Það var ekki vilji til þess hjá samstarfsflokkunum, aðallega öðrum en stundum báðum. Það var auðvitað vandinn og þær litlu breytingar sem komust í gegnum ríkisstjórnina enduðu síðan hér í einhverju málþófi og menn þurftu að gefa eitthvað eftir af öllum þessum breytingum sem voru til bóta. Mér sýnist að menn séu almennt búnir að átta sig á því í dag að það er nauðsynlegt að gera þessar breytingar og að ekki verði komist hjá því að gera þær. Þess vegna kemur þessi breytingartillaga á lögunum fram, væntanlega líka vegna þrýstings frá Schengen-ríkjunum. Það er bara verið að þrýsta á það. En svo á núna einhvern veginn að reyna að eyðileggja þetta. En varðandi orðið „ítrekuð“ — þarna er bara verið að tala um brot gegn allsherjarreglu, þetta þurfa ekki að vera alvarleg brot. En hvað þetta varðar þá er alla vega heimild til að vísa fólki burt þrátt fyrir að brotin séu ekki endilega alvarleg og það þurfi ekkert að vera ítrekuð brot. Það er auðvitað mikilvægt í þessu að við séum ekki alltaf að rífast um hvað teljist nægilega ítrekuð brot og að okkur finnist þau ekki nógu alvarleg — þetta eru samt brot gegn allsherjarreglu og brot gegn almannaöryggi og það eru bara alvarleg brot í mínum huga jafnvel þótt refsingin í einstaka málum yrði ekkert mjög þung.