157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:44]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Niðurstaða mín er sú að eina vitið sé þá að Miðflokkurinn sé í ríkisstjórn. En við náum kannski að klára eitthvað af þessum málum. Þegar ég les 2. kafla í greinargerðinni, um tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar, óttast ég hins vegar að það sé ekki mikill vilji hjá þessari ríkisstjórn til að bæta málin. Tilefni og nauðsyn koma eingöngu til af því að Evrópusambandið er að byrja að átta sig á vandamálunum. Af því að Evrópusambandið vill að hlutirnir séu með einhverjum hætti þá vakna þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar og átta sig á því að það gangi kannski ekki lengur að hafa þetta í því stjórnleysi sem verið hefur. Ég nýti því tækifærið og spyr í seinni spurningu minni, af því að hv. þingmaður nefnir að þetta sé ekki einkamál Íslands, sem var mjög góður punktur: Telur hv. þingmaður að við eigum von á meiru frá þessari ríkisstjórn þegar kemur að útlendingamálum eða þurfum við að bíða eftir því að það komi eitthvað frá Evrópusambandinu til að sjá hvort ríkisstjórnin geri eitthvað meira?