157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:45]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég get alveg fallist á að Miðflokkurinn á alltaf að vera í ríkisstjórn. Það er hins vegar alveg rétt að það er ekkert sem getur vakið þessa tvo flokka, Viðreisn og Samfylkingu, nema eitthvað komi frá ESB eða frá Brussel. Það er eina vekjaraklukkan um að menn hafi rangt fyrir sér. Þessi vandi hefur legið fyrir árum saman. Hann lá fyrir þegar við settum þessi útlendingalög 2016 og á það var bent, vel að merkja. Þetta hefur alltaf legið fyrir. Þetta hefur verið svo erfitt pólitískt vegna þess að vinstri flokkarnir hafa verið ráðandi í ESB í þrjá áratugi. Það er einfaldlega þannig að þessir flokkar vöknuðu ekki fyrr en þeir voru algerlega búnir að missa stjórn á eigin samfélögum. Kannski er þetta merki þess að menn séu að vakna hér af því að ESB er að vakna og kannski geta menn haldið sér vakandi smástund. Ég er ekki viss um það.