útlendingar.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þingmenn voru að ræða. Hafi ég skilið hv. þingmann rétt þá hefur hann ákveðnar efasemdir um að þetta orðalag eigi að vera þarna inni, þ.e. „ítrekuð“ brot. Samt finnst mér ég greina í máli bæði hv. þingmanns og hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur að það er þarna eitthvert grátt svæði. Við vitum að hér er í gangi skipulögð brotastarfsemi og það er stundum, og kannski oftast, matskennt hversu alvarleg hún er; hún er engu að síður ítrekuð og skipulögð. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort það sé ekki eðlilegt að þessi setning sé þarna inni. Eins og hv. þingmaður vék hér að þá er þetta ekki séríslenskt. Evrópa virðist vera að vakna. Meira að segja hin vinstri sinnaða Evrópa er að sjá að þetta er einfaldlega ekki að ganga upp eins og þetta er núna. Þess vegna tel ég, og er hér að sækjast eftir heilbrigðisvottorði á skoðun minni frá hv. þm. Brynjari Níelssyni, að þetta verði að vera inni því að annars geta skipulagðir glæpahópar bara alltaf dansað á þessari matskenndu línu, á þessu gráa svæði. Spurningin er tiltölulega einföld: Verður þetta ekki að vera inni, vegna þess hversu matskennt þetta er, til að þessi starfsemi þrífist ekki hér óáreitt árum saman og sé jafnvel stunduð af sömu hópunum? Þeir skipta bara út leikendum á sviðinu eins og skipt er um leikmenn á handboltavelli. Það eru bara nýir menn settir inn en starfsemin heldur áfram.