útlendingar.
Forseti. Jú, það má vel vera að þetta eigi bara að vera inni. Ég nefndi þetta bara af því að það kynni að vera ástæða til einhvers konar umræðu. Ég á það til að ganga lengra og ögra umhverfinu, það kemur fyrir, en þá er það oftast til að vekja einhverja umræðu. En hvað þetta varðar, með orðið ítrekað — þótt við sleppum því orði, og það nægi þá bara að brjóta einu sinni af sér, þá erum við samt bara að tala um heimild. Hugsunin hjá mér er að það sé ekki um að ræða skyldu. Þá er það bara metið í hverju tilviki hvort, í þessu einstaka broti, viðkomandi sé í einhverjum glæpasamtökum, Hells Angels eða einhverju þannig. Maður getur ímyndað sér einhver samtök sem menn vita að eru í einhvers konar brotastarfsemi, þannig að það sé eitthvert mat haft í þessu. Þá má alveg sleppa þessu orði ítrekað.
Ég veit að ef menn nota orðið „ítrekað“ þá getur það dugað alveg ótrúlega lengi. Ég þekki það bara sem starfandi í þessum glæpaheimi meiri hluta starfsævi minnar og verandi, má segja, bæði góðkunningi lögreglu og glæpamanna. Ég veit því alveg hvernig þetta virkar. Ég veit alveg hvernig þetta er. Ég veit alveg hvað er að gerast. Við höfum horft á þetta gerast svo lengi vitandi það að vandinn myndi bara vaxa. En enginn hafði pólitískt þrek, almennilegt pólitískt þrek, til að stíga niður fæti, af því að menn þorðu því ekki pólitískt, og segja: Svona er þróunin, svona verður þetta og á endanum munum við ekki ráða við eitt né neitt. Það er ofsalega erfitt fyrir stjórnmálamann að segja þetta af því að þeir eru að hugsa um að hafa alla góða.