útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar að ræða þessar vangaveltur um ítrekuð brot. Ég skil áhyggjur hv. þingmanns af því að þetta sé nokkuð loðið hugtak. Þýðir ítrekað tvisvar sinnum eða þýðir ítrekað þrisvar sinnum? Það þarf kannski að vera skýrara en klárlega þarf að taka á endurteknum brotum. Þá þarf bara að setja eitthvert númer á það. Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann: Við heyrum alltaf í þessari umræðu vitnað til einhverra mannréttinda. Sá sem hér stendur metur það ekki svo að það séu mannréttindi að fá að dvelja á Íslandi, sama hvað. Mig langar því að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort hann geti verið sammála mér um það að þegar menn eru klárlega að gerast alvarlega brotlegir eða ítrekað þá séu það ekki mannréttindi viðkomandi einstaklinga sem hafa fengið hér dvalarleyfi að vera hér áfram.