157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:51]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni, mannréttindaumræðan er löngu komin út í móa. Menn eru löngu hættir að skilja um hvað mannréttindi snúast yfir höfuð. Það þarf lengri ræðu í það. En vissulega getur það snúið að mannréttindum hvernig málsmeðferð í svona málum er. Menn eiga rétt á að andmæla o.s.frv. og við erum með alls konar reglur. En þau réttindi að fá vernd hér eru ekki mannréttindi. Sjálfsagt finnst það einhverjum en það heldur ekki. Þar af leiðandi er það ekki spurning um mannréttindi að slík réttindi séu afturkölluð að uppfylltum einhverjum skilyrðum laga. Flóknara er þetta ekki. Menn munu auðvitað þvæla þetta út og suður í umræðunni og við erum löngu búin að missa tökin á allri þessari mannréttindaumræðu vegna þess að hún hefur verið yfirtekin af atktívistahópum úti um allan heim. Valdið er jafnvel lagt í hendur þeirra, ákvarðanir um það hvað teljist mannréttindi o.s.frv. Við bara ráðum okkur ekki sjálf hvað þetta varðar.