útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og breytingartillöguna við þetta mál, sem ég myndi segja að væri til bóta. Ég heyri hér að menn ræða svolítið um þetta orð „ítrekað“, hvort það þurfi að standa hér. Kannski orsakast það af því að menn átta sig ekki á því hvað felst í allsherjarreglu eða almannaöryggi. Hvað er það sem ógnar allsherjarreglu eða almannaöryggi? Það væri kannski ágætt ef hv. þingmaður, sem þekkir þetta, eins og hann hefur sjálfur lýst, úr ýmsum áttum, færi kannski aðeins yfir það, bara svona í praktískum atriðum. Hvað er það sem ógnar allsherjarreglu? Ég myndi t.d. telja að maður sem er tekinn fyrir búðahnupl, þó að það sé bara einu sinni, sem er hluti af skipulagðri starfsemi, ógni það allsherjarreglu. Ef hv. þingmaður gæti kannski aðeins farið yfir þetta þannig að menn skilji þetta og kannski tekið einhver fleiri praktísk dæmi sem mér dettur ekki í hug í þessu sambandi. Eins og ég lít á það er breytingartillaga hv. þingmanns að þrengja, eða kannski ætti maður frekar að segja að víkka út, skyldu stjórnvalda til að afnema vernd. Í fyrsta lagi er hér kveðið á um skyldu stjórnvalda til að svipta menn alþjóðlegri vernd. Það er nýmæli og er kannski stærsta breytingin. Það er einhvern veginn þannig að í lögum um útlendinga eru mjög miklar skyldur lagðar á ríkisvaldið til að gera hitt og þetta en hins vegar er heimild fyrir þann sem nýtur réttindanna til að reyna að kalla eftir frekari réttindum.
Ég kem ekki að fleiri spurningum til hv. þingmanns í þessu máli. En það væri ágætt ef hv. þingmaður gæti aðeins skerpt á afstöðunni sem hann hefur til þess að hvaða leyti þessi breytingartillaga hans er að þrengja þetta eða víkka eftir því frá hvaða sjónarhorni maður horfir á málið.