útlendingar.
Forseti. Ég myndi orða það þannig að ég væri að víkka heimildir og skyldu stjórnvalda til að bregðast við ef menn hafa gerst brotlegir, bregðast við með afturköllun. Ég veit að ég á í svolitlum vandræðum með þessa ítrekun og hvað er allsherjarregla og almannaöryggi. Marga smáglæpi eins og hnupl og þjófnað — kannski ekki þung refsing í fyrsta sinn — er hægt að stunda með skipulegum hætti og í hópum. Gjarnan tengist slíkt þar að auki peningaþvætti o.s.frv. Þetta er að grafa undan samfélaginu. Verknaðurinn sjálfur einn og sér þarf ekki að vera alvarlegur. Þess vegna er ég að segja að kannski megi sleppa því að tala um ítrekuð afbrot og segja bara: Ókei, þetta er þá skilyrði ef menn hafa gerst brotlegir við allsherjarreglu og almannaöryggi; þó er það bara heimild en ekki skylda eins og þegar um alvarlegu brotin er að ræða. Þannig er ég að hugsa þetta. Ef menn skilja textann einhvern veginn öðruvísi þá er það klúður hjá mér. Þannig er hugsunin í þessu, að alvarleg brot og svo önnur brot, sem við getum kallað að ógni allsherjarreglu eða almannaöryggi, þurfi ekki að vera ítrekuð, ef menn meta það svo að þessi brot séu hluti af skipulagðri glæpastarfsemi, og þá er um að ræða heimild. Þetta getur þá gilt hvað varðar vændi, þjófnað, peningaþvætti og hvaðeina. Í aðalatriðum er það hugsun mín í þessari tillögu en þetta er samt meira gert til að við getum alla vega farið í einhverja umræðu um þetta.