157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:58]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Forseti. Svona er gott að spyrja. Ég hafði ekki einu sinni áttað mig á því að tillaga hv. þingmanns er tvenns konar. Annars vegar er kveðið á um skyldu til að afturkalla vernd og hins vegar um heimild til að svipta mann alþjóðlegri vernd; ég hafði ekki áttað mig á þessu heimildaákvæði. Það er því ágætt að ég spyrji þá aftur: Af hverju leggur hv. þingmaður ekki til að þetta sé bara skylda í báðum tilvikum? Af hverju er heimilt að svipta mann sem hefur hlotið endanlegan dóm fyrir kynferðisbrot, þar sem refsing liggur við brotinu, fangelsi í ekki skemur en eitt ár — nú er það oft vandi í þessari löggjöf og í löggjöf yfir höfuð að það er verið að kveða á um einhverjar svona matskenndar ákvarðanir sem stjórnvöld þurfi að taka. Ég vil gjarnan létta stjórnvöldum lífið í þeim efnum og að þingið skerpi frekar á reglunum eins og hv. þingmaður gerir með því að kveða á um að það skuli afturkalla vernd, en í löggjöfinni í dag er bara heimilt að afturkalla, hér er þó verið að kveða á um skyldu. En hins vegar heimild — ég bara velti fyrir mér: Af hverju gekk hv. þingmaður ekki lengra en þetta og kveður á um skyldu í báðum tilvikum?