157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:00]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ábyrgðarhlutverk að taka sæti á Alþingi og það er okkar hlutverk að setja lög, móta regluverk og tryggja að það virki til að tryggja öruggt og farsælt samfélag. Stjórnmál byggjast vissulega á hugmyndafræðilegum gildum og rökræðu en þau snúast ekki síður um að leysa raunveruleg verkefni, að vega og meta ólíka kosti og taka erfiðar en ábyrgar ákvarðanir í þágu þjóðarinnar. Við lifum á tímum öfga og skautunar, tímum þar sem yfirveguð umræða og raunverulegar lausnir eiga til að drukkna í háværum yfirlýsingum þeirra sem horfa aðeins á afmarkaðan hluta samfélagsins og móta alla sína pólitík út frá þröngri hugmyndafræði eða eigin pólitíska frama. Þetta á sérstaklega við þegar fjallað er um málefni innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim málaflokki togast umræðan gjarnan í tvo jaðra, annars vegar þau sjónarmið að landamæri eigi nánast að vera opin, að Ísland eigi að taka á móti öllum sem hingað vilja koma, óháð getu samfélagsins til að byggja upp innviði, tryggja aðlögun, tungumálakennslu og raunverulega þátttöku í samfélaginu, og hins vegar þau sjónarmið, sem því miður hafa verið að verða sífellt háværari, að útlendingar séu einfaldlega ógn við samfélagið, að loka eigi landamærunum og ekki eigi að taka við einni einustu fjölskyldu í viðbót sem flýr stríð, náttúruhamfarir eða aðrar hörmungar. Þegar við horfum vestur yfir haf þessa dagana sjáum við hversu langt stjórnmál byggð á slíkum ótta geta gengið; grímuklæddir menn ganga hús úr húsi í leit að innflytjendum til að handtaka og vísa úr landi. Þeir sem mótmæla, þeir þegnar sem mótmæla með friðsömum hætti eiga jafnvel á hættu að vera barðir, fangelsaðir eða skotnir.

Virðulegi forseti. Það er ábyrgðarhlutverk að fjalla um málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd og við eigum að gera það af yfirvegun og skynsemi. Það eru áskoranir víða í kerfunum okkar. Breytt heimsmynd, aukinn fjöldi umsókna og lengri málsmeðferðartími hefur skapað áskoranir í kerfinu sem við þurfum að bregðast við. Við getum staðið vörð um mannréttindi fólks og um leið tryggt öryggi samfélagsins. Við getum byggt upp kerfi sem er bæði mannúðlegt og skilvirkt og við getum komið í veg fyrir misnotkun á kerfinu án þess að brjóta á mannréttindum eða fórna grundvallargildum réttarríkisins. Frumvarpið sem við ræðum hér í dag heimilar afturköllun alþjóðlegrar verndar í afmörkuðum tilvikum þegar gildar ástæður eru til að telja einstakling hættulegan öryggi ríkisins, þegar hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt brot eða þegar hann hefur ítrekað framið brot sem ógna allsherjarreglu og almannaöryggi. Frumvarpið stuðlar þannig að auknu öryggi hér á landi og vinnur markvisst gegn því að lítill hópur einstaklinga sem nýtur alþjóðlegrar verndar og brýtur af sér fái að grafa undan trausti á verndarkerfinu og mikilvægi þess. Þetta eru ekki ný viðmið sem Ísland finnur upp heldur eru þetta sömu meginreglur og liggja til grundvallar flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem heimilar ríkjum að grípa til slíkra aðgerða þegar raunveruleg ógn steðjar að samfélaginu. En, og þetta skiptir máli, frumvarpið gengur ekki svo langt að brjóta á mannréttindum eða alþjóðlegum skuldbindingum okkar.

Íslensk stjórnvöld mega aldrei senda fólk út til ríkis þar sem það á á hættu að verða fyrir pyntingum, ómannúðlegri meðferð eða lenda í lífshættu. Sú regla er bundin bæði í stjórnarskrá okkar og mannréttindasáttmála Evrópu. Henni verður ekki vikið til hliðar, jafnvel ekki á tímum neyðarástands. Þess vegna er skýrt kveðið á um að þótt alþjóðleg vernd sé afturkölluð þá megi ekki framkvæma brottvísun ef slík hætta er fyrir hendi. Í þeim tilvikum á viðkomandi rétt á tímabundnu dvalarleyfi hér á landi, svokallaðri umborinni dvöl. Í þeim tilvikum sem ekki er hægt að vísa einstaklingi úr landi er afturköllun alþjóðlegrar verndar engu að síður alvarleg og afdrifarík ákvörðun sem hefur afleiðingar. Hún þýðir að ríkið er að segja skýrt: Þessi einstaklingur nýtur ekki lengur þeirrar stöðu, þeirra réttinda og þeirrar verndar sem fylgir flóttamanna- eða viðbótarvernd. Hún felur m.a. í sér að viðkomandi missir sérstaka verndarstöðu sína, að sérstakur réttur til fjölskyldusameiningar fellur á brott, að réttur til varanlegs dvalarleyfis og ríkisborgararéttar fellur á brott og að brottvísun og endurkomubann eru formlega ákveðin, jafnvel þótt framkvæmd þeirra þurfi að bíða.

Virðulegi forseti. Í frumvarpinu er lagt til að fella brott 2. mgr. 74. gr. útlendingalaga, það ákvæði sem heimilar veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða þegar niðurstaða í verndarmáli liggur ekki fyrir innan lögbundinna tímamarka. Með þessu er verið að afnema það sem hefur verið nefnt 18 mánaða reglan. Það er rétt að taka fram að um séríslenska málsmeðferðarreglu er að ræða. Ekkert annað norrænt ríki hefur sambærilegt fyrirkomulag þar sem réttur til dvalarleyfis stofnast eingöngu á grundvelli þess að málsmeðferð hafi tekið tiltekinn tíma. Í frumvarpinu er áréttað að stjórnvöld eru og verða áfram bundin skýrum skyldum til að afgreiða mál eins fljótt og unnt er, bæði samkvæmt útlendingalögum og stjórnsýslulögum með hliðsjón af hagsmunum málsaðila og kostnaði sem hlýst af málsmeðferðinni og þjónustu við umsækjendur. Stjórnvöld hafa unnið markvisst að því að stytta málsmeðferðartímann og styrkt Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála til að stuðla að því að málsmeðferð verði stytt. Það er bæði hagur umsækjanda og íslenska ríkisins. Ástæðan fyrir þessari breytingu er einkum sú að íslenska verndarkerfið er smátt og viðkvæmt. Það nær fljótt þolmörkum þegar kemur að afkastagetu og málsmeðferðartíma, sérstaklega þegar fjöldi umsókna eykst skyndilega eins og reynslan bæði hér á landi og víðar í Evrópu sýnir. Við slíkar aðstæður lengist málsmeðferðartíminn óhjákvæmilega. Ef í gildi er regla sem tengir réttindi beint við lengd málsmeðferðar skapast hætta á að kerfið verði óskilvirkara, að ákvarðanir ráðist fremur af tíma en efni mála og hvatar myndist sem ganga gegn markmiðum skilvirkrar og vandaðrar stjórnsýslu. Markmiðið með brottfalli ákvæðisins er því ekki að draga úr mannúð heldur að tryggja að veiting dvalarleyfa byggist á efnislegu mati og skýrum lagaskilyrðum en ekki eingöngu á töfum í kerfinu.

Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni frumvarp sem hefur það hlutverk að samræma reglur og heimildir við það sem tíðkast á Norðurlöndunum og í ríkjum Evrópusambandsins. Frumvarpið stuðlar að auknu öryggi hér á landi og er mikilvægt skref í þá átt að auka traust á verndarkerfið, að draga úr möguleikum þeirra sem misnota kerfið og grafa undan því. Á Íslandi býr fjölbreyttur hópur fólks sem kemur víðs vegar að úr Evrópu og heiminum öllum. Það er hlutverk íslenskra stjórnvalda að tryggja að þetta fólk fái raunveruleg tækifæri til að verða hluti af samfélaginu, læra tungumálið og taka virkan þátt í uppbyggingu þess. Á tímum þar sem andúð í garð útlendinga fer vaxandi víða og stjórnmál byggð á ótta fá aukið rými skiptir máli að regluverkið sé skýrt, að réttindi og skyldur haldist í hendur og að misnotkun kerfa hafi afleiðingar. Ég vona að við getum sameinast hér á Alþingi um tvö markmið, að laga kerfin og efla öryggi á landamærunum og að tryggja um leið að þau sem hingað koma og flytja til landsins fái raunveruleg tækifæri til að aðlagast samfélaginu, læra tungumálið og taka þátt í að byggja upp það öfluga samfélag sem við eigum hér saman.