útlendingar.
Virðulegur forseti. Það var gott að heyra þessa ræðu. Mér sýnist að þingmaðurinn sé í Samfylkingunni. Þessi Samfylkingarmaður var ekki til þegar ég var á þingi. Það talaði enginn Samfylkingarmaður svona. Í hvert einasta skipti sem menn gerðu tilraunir til að ná stjórn á landamærunum, til að hafa eitthvert skikk á þessum hlutum, var því andmælt, að vísu með sömu rökum og hv. þingmaður talaði um núna, þ.e. að verið væri að ala á hræðslu og hræðsluáróðri og allur þessi pakki. Þetta er enginn hræðsluáróður. Þetta snýst um það að við höfum stjórn á landamærunum sem sjálfstæð þjóð og fullvalda ríki. Í hvert einasta skipti, hv. þingmaður, sem gerð var tilraun til að ná einhverju skikki, og þær voru ekki öfgafullar, komu allir þingmenn Samfylkingarinnar og börðust gegn þessu. Þeir börðust jafnvel gegn þessu á vettvangi samfélagsins þegar búið var að afgreiða umsókn og hafna henni, komu í veg fyrir að hægt væri að framfylgja því. Þannig var Samfylkingin þegar ég var á þingi síðast. En auðvitað er það þannig, og það eru engar öfgar í því, og þess vegna fagna ég þessu frumvarpi, að það er mikilvægt að missa ekki tökin á þessu. Við erum fyrir löngu búin að missa tökin á þessu. Við getum kannski snúið við, eins og Danirnir sögðu við okkur þegar við heimsóttum þá: Þið getið enn snúið við, verið þið ekki eins vitlaus og við. Þetta er einn hluti af því og ég fagna því. Þetta var fín ræða hjá hv. þingmanni en eini gallinn var sá að gera aðra sem leggja mikla áherslu á þessi mál að einhvers konar ofstækisfólki, öfgafólki. Það er ekki þannig. Það á hvorki við um mig né aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins eða Miðflokksins. Þetta er spurning um að við getum verið fullvalda þjóð.