157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:12]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla ekki að setja mig í þau spor að svara fyrir fyrri verk, mér skilst að það séu rúm fjögur ár síðan þingmaðurinn var hér á þingi. Ég nefndi enga sérstaka stjórnmálaflokka ef ég á að segja alveg eins og er. Það sem ég nefndi sérstaklega var sá ótti sem ég hef gagnvart skautun í umræðunni. Þegar við ætlum að gera lítið úr raunveruleikanum og loka augunum fyrir ákveðnum vandamálum þá erum við að ýkja vandamálið, þá erum við að gera vandamálið stærra. Það sama á við ef við reynum að gera of mikið úr vandamálinu og ef við reynum að gera of lítið úr því. Við þurfum að horfa raunsætt á málið, leggja fram lausnir, laga kerfin þar sem þarf að laga kerfin. En eins og ég kom inn á í minni ræðu þá skiptir ekki minna máli, og það er líka lærdómur frá nágrannaríkjum okkar, að á sama tíma og við eflum öryggi á landamærunum, veitum ríkinu þessa heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef viðkomandi einstaklingur brýtur alvarlega af sér eða er ítrekað að brjóta af sér, sem ógnar almannareglu; að ríkið hafi þá heimild til að afturkalla allsherjarvernd. En við þurfum líka að horfa til þess að hingað er kominn stór hópur erlends fólks, hefur sest hér að og það skiptir ekki minna máli að við tryggjum að það fólk nái að vera hluti af íslensku samfélagi. Við verðum að vera tilbúin til að horfa á bæði þessi verkefni ef markmið okkar er raunverulega það að við viljum tryggja hér öruggt og öflugt samfélag eftir fimm ár, tíu ár eða 15 ár.