157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:13]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er alveg rétt að þetta er mikilvægt fyrir okkur. Við þurfum og höfum þurft á útlendingum að halda og það er bara hið besta mál. En við þurfum líka að hafa stjórn og það hefur verið vandinn í ein tíu ár bráðum. Því miður tókst okkur ekki að gera það sem gera þurfti alveg frá árinu 2018 vegna þess að ekki var pólitískur vilji eða þrek til að keyra það áfram. Þess vegna fagna ég þessu. Ég er ekki alveg sammála hv. þingmanni um að það sé svo mikil skautun í þessari umræðu, ég upplifi hana ekki í stjórnmálunum. Þú getur fundið alls konar umræðu úti í samfélaginu. Ég upplifi ekki þessa skautun. Mér finnst margir þingmenn, jafnvel úr Sjálfstæðisflokki, aðallega kannski úr Miðflokki, bara vera með eðlilega og skýra umræðu, eðlilegar spurningar og eðlilegar tillögur, en þeir hafa fengið á móti að það sé orðin einhver hvít yfirburðahyggja og einhver þvæla. Við þurfum að varast þetta, þetta er skautun.