útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég ætla að taka heils hugar undir með hv. þingmanni að því miður hefur ekki tekist á síðastliðnum átta til tíu árum annars vegar að ná stjórn á landamærunum, að við tökum til í kerfunum okkar, og hins vegar að tryggja að þau sem setjast hér að læri tungumálið, verði hluti af samfélaginu o.s.frv. Sem betur fer er hingað komin ríkisstjórn sem er með breiða sátt um að taka til í þessum málum og er að gera það; er t.d. þegar farin að leggja fram frumvörp, gerði það síðastliðið vor, varðandi það að gefa upp farþegalista til að tryggja að við séum að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Hér er frumvarp um að afturkalla alþjóðlega vernd ef einstaklingur brýtur af sér og svo hefur dómsmálaráðherra boðað fleiri frumvörp. Og sem betur fer er núna víðtækur stuðningur hér á þingi.