157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:21]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég vil taka undir þann þátt sem snýr að því að það er skynsamlegt kerfi að vera með kvótaflóttamenn og ákveða hvaða fjölda við tökum á móti og leita sérstaklega til þeirra sem þurfa mest á stuðningi að halda. Hins vegar kom hv. þingmaður inn á það að í því kerfi væri litið til þess hversu líklegt væri að fólk myndi aðlagast samfélaginu. Mig rekur ekki minni til þess að það hafi verið hluti af þessu kerfi heldur hafi einfaldlega verið farið til þeirra landa þar sem neyðin var mest. Samfélagið hér undirbjó mjög vel móttöku þessara fjölskyldna en það var ekki verið að velja einstaklinga frá löndum þar sem fólk væri líklegt til að aðlagast íslenskri menningu. Dæmin sýna okkur að við stöndum okkur vel í því að taka á móti þeim hópum sem við tökum á móti og þá gengur aðlögunin mjög vel. Sagan sýnir það áratugi aftur í tímann alls staðar á landinu. En það er gott kerfi að undirbúa sig vel, taka vel á móti fólki og að samfélagið taki utan um þá hópa sem hingað koma.