157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:22]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og sérstaklega fyrir að taka þátt í umræðunni auk hv. framsögumanns sem flutti hér framsögu. Ég hafði ekki tök á að eiga orðaskipti við hann þannig að það ber vel í veiði að hv. þingmaður er í nefndinni og þekkir störf hennar og umfjöllunina þar. Mig langaði því að spyrja fyrst hvort hann gæti upplýst okkur um það hvort nefndin hefði sérstaklega fjallað um áhrif þessa frumvarps, nái það fram að ganga, með eða án þeirra breytingartillagna sem liggja hér fyrir, á stöðuna í dag.

Í greinargerð er stuttur kafli um það hver áhrifin yrðu vegna ákvæða í þessu frumvarpi er lúta að tímafresti, sem er skynsamleg breyting að mínu mati, sem felst í því að tíminn verður ekki lengur einhver sérstök forsenda fyrir veitingu alþjóðlegrar verndar. En það er ekkert fjallað um það sem er meginmálið í því sem verið hefur í umræðunni, sem er þessi afturköllun alþjóðlegrar verndar í tilfelli glæpamanna vegna uppkveðinna dóma. Ég hefði haldið að það væri tiltölulega auðvelt með þá tölfræði sem við höfum í dag að varpa ljósi á það, a.m.k. svara þeirri spurningu hver staðan væri í dag í þessum málum ef þetta frumvarp hefði náð fram að ganga. Hvers megum við vænta? Hversu margir eru þarna undir? Hversu margir sem hafa hlotið alþjóðlega vernd eða leyfi til dvalar af mannúðarástæðum eru að brjóta af sér og munu falla undir þetta? Gæti hv. þingmaður kannski varpað ljósi á umræðuna, hafi hún farið fram í nefndinni, um þessi mál.