útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í umfjöllun nefndarinnar voru vissulega skoðaðir ýmsir þættir, m.a. varðandi áhrifin. Það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á að mestu áhrifin snúi í rauninni að 18 mánaða reglubreytingunni. Það er það sem mun hafa mest áhrif á kerfið sjálft. Varðandi afturköllun verndar þá eru þetta ekki mörg tilvik þar sem viðkomandi sem hefur hlotið alþjóðlega vernd brýtur af sér með alvarlegum eða ítrekuðum hætti, sem betur fer. Ef ég man rétt voru þetta í kringum tíu einstaklingar sem voru nefndir sem hefðu hugsanlega fallið undir þetta ef þessi lög hefðu verið í gildi á síðastliðnum árum. Það breytir ekki því að þessir tíu einstaklingar og það að hafa ekki þessa heimild skemmir fyrir trausti og ásýnd kerfisins í heild sinni og þess vegna teljum við mikilvægt að þessi heimild sé til staðar en einnig er líka ákveðinn fælingarmáttur í því. Ef þú hefur hlotið alþjóðlega vernd og ætlar að fara að stunda glæpi hér á Íslandi þá ertu meðvitaður um þessar afleiðingar ef þetta frumvarp nær fram að ganga og við teljum að það sé mikilvægt.