útlendingar.
Forseti. Ég tek undir það að það er mikilvægt að menn viti að hverju þeir ganga hvað þessi mál varðar þegar þeir koma hingað. Mig langar líka að spyrja út í ummæli í nefndarálitinu, í kaflanum sem fjallar um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða við afturköllun alþjóðlegrar verndar. Lagt er til með frumvarpinu að áfram verði unnt að taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, einkum í tilvikum þar sem vernd fellur niður vegna þess að aðstæður hafa breyst í heimalandi en einstaklingurinn sjálfur hefur ekkert til saka unnið sem leiðir til þess að verndin falli niður, eins og segir í nefndarálitinu. Mér finnst einhvern veginn eins og höfundar nefndarálitsins líti alltof víðtækt á hlutverk veitingu verndar. Verndin er veitt vegna þess að það eru ákveðnar aðstæður í heimalandinu. Ef aðstæðurnar breytast — er einhver að velkjast í vafa um að þá er auðvitað komin forsenda fyrir því að fella verndina niður?