útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Hér er einfaldlega verið að bregðast við því að einstaklingar hafa alltaf þann rétt að sækja um vernd af mannúðarástæðum, óháð því hvort þú sért hér á landi út af aðstæðum í heimalandi en hafir ekki sótt um vernd af mannúðarástæðum. Ef það breytist eitthvað í heimalandinu hefur fólk enn þennan rétt, samkvæmt þeim skuldbindandi sáttmálum sem við höfum tekið þátt í, til að sækja um vernd. Það fær svo bara sína málsmeðferð og hvort niðurstaðan verður sú að vernd sé veitt er í raun ekki það sem þú hefur sjálfkrafa tilkall til. Þú hefur í raun bara rétt til að þessi málsmeðferð fari í gang ef aðstæður í heimalandi breytast og að það sé ástæðan fyrir því að það á að vísa þér úr landi. Það er ekki verið að fella út þann rétt sem einstaklingur á að hafa samkvæmt þessum sáttmála frá 1951. Þetta þýðir ekki að þú fáir sjálfkrafa vernd. Þetta þýðir að þú fáir áfram heimild til að sækja um vernd þegar þetta ástand breytist.